• Þingræða um ESB skýrslu Hagfræðistofnunar

    Ræða sem ég flutti í Alþingi 20. febrúar um ESB skýrslu Hagfræðistofnunar.

    Virðulegi Forseti,

    Við ræðum skýrslu utanríkisráðherra um stöðu aðildarferlisins og horfur í Evrópusambandinu.

    Þær upplýsingar sem fram koma í skýrslunni styðja þá skoðun mína að forsendur aðildarumsóknarinnar séu brostnar og Evrópusambandið sé alls ekki sú lausn á vandamálum Íslands sem haldið var fram. (meira…)

  • Er neysluvísitalan ofmæld?

    Í skýrslu minnihluta nefndar um afnám verðtryggingar er meðal annars vakin athygli á því hversu flókið verkefni það er að mæla verðbreytingar. Hætta sé á ofmati. Ofmat vísitölu sem næmi aðeins 1,5% á ári myndi leiða til tilfærslu eigna upp á 25,5 milljarða frá skuldsettum heimilum til lánastofnana. Það myndi þýða tugi eða jafnvel hundruð þúsund í hækkun skulda árlega á hvert skuldsett heimili.  (meira…)

  • Meirihlutinn vill krónuna áfram

    Afstaða til ISKÞrátt fyrir alvarlegt efnahagsáfall, fjármagnshöft og talsverðan áróður gegn íslensku krónunni benda kannanir Fréttablaðsins til þess að rúmlega helmingur landsmanna vilji hafa krónuna áfram. Í janúar 2009 vildu aðeins 38,1% halda í krónuna en í janúar 2014 hafði þetta hlutfall hækkað um 32% og var orðið 50,3%.

    Fróðlegt væri kanna hvað þeir vilja í staðinn sem ekki vilja hafa krónuna. Þá kæmi eflaust í ljós að sá hópur er alls ekki jafn einhuga og hópurinn sem vilja hafa krónu áfram. Einhverjir vilja eflaust aðild að ESB og evrusvæðinu en aðrir vilja taka upp dollar eða einhverjar aðrar myntir. Ef þessi skipting yrði könnuð nánar kæmi eflaust í ljós að þeir sem vilja krónu áfram eru í afgerandi meirihluta.

  • Auroracoin peningasvindl?

    aurlogo6Mbl.is flytur fréttir af áformum óþekktra en ákaflega góðhjartaðra aðila sem hyggjast gefa sérhverjum Íslendingi 31.8 auroracoin þann 25. mars næstkomandi. Íslendingar geti þá notað Auroracoin sem gjaldmiðil í staðinn fyrir krónur. Þannig verði þjóðin laus undan „gjaldeyrishöftum og útþynningu gjaldmiðilsins“.

    Ýmislegt bendir samt til þess að hér sé um að ræða peningasvindl og brot á lögum.  (meira…)

  • Afnemum verðtrygginguna strax

    Harmageddon

    Frosti ræðir um afnám verðtryggingar í viðtali hjá Harmageddon á X-inu útvarpsstöð þann 4. febrúar, smellið á myndina til að heyra viðtalið.

  • Einhugur um afnám verðtryggingar – en hversu hratt?

    SkyrslaumafnamverdtrNiðurstaða nefndar um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum er einróma sú að verðtrygging sé skaðleg og hana þurfi að afnema. Nefndin klofnaði hins vegar í afstöðu sinni til þess hversu hratt eigi að afnema verðtrygginguna. Minnihluti nefndarinnar leggur til afnám strax á miðju ári, en meirihlutinn vill afnema verðtryggingu í áföngum og taka fyrsta skrefið næstu áramót. Þingið þarf því að velja á milli þessara valkosta. Í þessum pistli skoða ég helstu rök meirihlutans gegn afnámi í einu skrefi og set fram mótrök gegn þeim. (meira…)

  • Undanþága minni fjármálafyrirtækja frá bankaskatti

    Skuldafrímark bankaskatts að fjárhæð 50 milljarðar hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum og einkum hvernig sú tala hafi verið fundin. Á morgun verður fundur í efnahags- og viðskiptanefnd til að fara yfir málið.

    Aðdragandi skuldafrímarksins er þannig að umsagnir um frumvarp um breytingar á bankaskatti vöruðu við því að hækkun skatthlutfallsins myndi koma þungt niður á minni fjármálafyrirtækjum. Bent var á að við því mætti bregðast með frískuldamarki. (meira…)

  • Um aðildarviðræður

    Í þinginu í dag var sérstök umræða um stöðu aðildarviðræðna, hér er ræða sem ég flutti við það tilefni.
    Virðulegi forseti,
    Í síðustu kosningum fóru sjálfstæðisflokkur og framsóknarflokkur fram með afar skýra afstöðu gegn ESB aðild, og aðildarferlinu.
  • Vaxtalaus bílalán eru ekki ókeypis

    gildrapeningarNokkur bifreiðaumboð eru farin að auglýsa „vaxtalaus“ bílalán. Þegar betur er gáð þá eru vaxtalausu lánin alls ekki ókeypis. Því „vaxtalaus“ lán frá bifreiðaumboði bjóðast bara þeim sem sætta sig við að fá ekki afslætti eða aukahluti í kaupbæti sem bjóðast þeim sem staðgreiða eða greiða með venjulegu bílaláni. (meira…)

  • Andríki á villigötum

    Glúmur Björnsson ritar pistil á andriki.is föstudag 10. janúar þar sem hann ýjar að því að frískuldamark bankaskatts hafi verið sérhannað til að hlífa MP banka við skattinum. Glúmur lætur að því liggja að Sigurður Hannesson, formaður skuldaleiðréttingarhópsins og starfsmaður MP banka, hafi komið skuldafrímarkinu á til að hlífa MP banka. Glúmur vegur ekki síður að heiðri efnahags- og viðskiptanefndar, segir nefndina hafi stokkið til á síðustu starfsdögum þingsins fyrir jól og laumað skattfrelsi fyrir suma inn í frumvarpið. Þetta er rangt hjá Glúmi.

    (meira…)