Landsbankinn, Arionbanki og Íslandsbanki eru taldir of stórir til að falla. Það þýðir að ef einhver þessara þriggja banka yrði gjaldþrota, þá myndi ríkissjóður koma til bjargar og lýsa yfir ríkisábyrgð á innstæðum.
Það má segja að á innstæðum í þessum þrem stærstu bönkum verði ekki komist hjá ríkisábyrgð. Eðlilegt væri því að þessir bankar greiddu ríkisábyrgðargjald í ríkissjóð í samræmi við lög um ríkisábyrgðir. Slíkt gjald myndi skila nokkrum milljörðum í ríkissjóð og jafna aðstöðu á bankamarkaði. (meira…)

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er í eigu ríkisins. Hlutverk hans er að stuðla að uppbyggingu og vexti íslensks atvinnulífs með því að taka þátt í fjárfestingum í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Sjóðurinn hefur frá stofnun komið að fjármögnun fjölmargra efnilegra fyrirtækja og þannig verið í lykilhlutverki í eflingu nýsköpunar á Íslandi. Nú eru 34 fyrirtæki og 3 sjóðir í
Efnahagsáfallið var mikið áfall fyrir sjálfstraust þjóðarinnar. Fáir hefðu trúað því að skömmu eftir hrun myndu hinir ráðdeildarsömu Þjóðverjar leita lausna hér á landi. Þýskir bankar töpuðu óhemju miklum fjármunum í hruninu en það stoppaði þó ekki þýska bankann
Landsbankinn hefur viðrað áform um að byggja allt að 15 þúsund fermetra húsnæði fyrir nýjar höfuðstöðvar bankans og vill hefja framkvæmdir sem fyrst. Í ljósi þess að Landsbankinn er í eigu ríkisins, sem er mjög skuldugt og stendur í erfiðum niðurskurði, er spurning hvort nýjar höfuðstöðvar ríkisbankans eigi að njóta forgangs.

Verðtryggðar skuldir heimilanna