VIÐTÖL

  • Hitamál rædd í Dagmálum Morgunblaðsins

    Eggert Skúlason bauð mér til sín í Dagmál til að ræða bókina Hitamál. Viðtalið í heild sinni er aðgengilegt áskrifendum (hlekkur á viðtalið) og hér er hlekkur á umföllun mbl.is um það þar sem horfa má á bút úr viðtalinu.

    Margt var rætt og ég sagði meðal annars:

    „Við erum í bandalagi með þjóðum sem eru bara ábyrgar fyrir fimmtán prósent af losun mannkynsins, sem hefur ákveðið að setja sér mjög harðar reglur og refsa sér ef þau ná þeim ekki. Allar hinar þjóðirnar sem eru í þessum Parísarsáttmála koma bara með yfirlýsingar. Viljayfirlýsingar um það sem þau myndu vilja gera. Skila skýrslum og ef þau geta það ekki þá segja þau bara sorrý. Gengur betur næst. Engin sekt.“

    „Þessi vísindi eru ekki nægilega vel unnin til að ætla að banna fólki að keyra bensínbíl eða að ætla að láta Icelandair borga tuttugu milljarða í loftslagsgjöld.“

    „Þetta er á leiðinni út í skurð. Við verðum að átta okkur á því að við ráðum ekkert við þetta, ef þetta heldur óbreytt áfram. Við verðum að gera eitthvað. Við verðum að segja stopp.“

  • Frostarnir spjalla um hlýnun

    Var gestur Frosta Logasonar í Spjallinu á Brotkasti 30. október 2025. Við ræddum um loftslagsmálin, stefnu stjórnvalda í þeim málum og hvað mætti betur fara. Margt af því er hægt að lesa nánar um í bókinni Hitamál.
    Nú er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni á Youtube, eða á Spotify, með því að nota spilarann hér fyrir neðan.

  • Hitamál rædd á útvarpi Sögu

    Var gestur Síðdegisútvarpsins á Útvarpi Sögu þar sem við Pétur Gunnlaugsson ræddum um bókina Hitamál, stefnu Íslands í loftslagsmálum, afleiðingar hennar og margt fleira þessu tengt.

    Það er hægt að hlusta á þáttinn hér fyrir neðan.

  • Klinkið viðtal um peningamálstefnu

    Klinkid 18.september 2014

    Frosti ræðir við Þorbjörn Þórðarson í spjallþættinum Klinkið 18. september. Rætt er um ráðstefnu í London á vegum Positive Money í Bretlandi.  Þar flutti Martin Wolf erindi um peningastefnu og Frosti var í pallborðsumræðum. Einnig er rætt um peningastefnu hérlendis. Smellið á myndina til að heyra viðtalið.

  • Bankar græða á vöxtum Seðlabankans.

    Reykjavík síðdegisSmellið á myndina til að heyra Frosta ræða um vaxtagjöld Seðlabankans við þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 17. mars 2014.

  • Afnemum verðtrygginguna strax

    Harmageddon

    Frosti ræðir um afnám verðtryggingar í viðtali hjá Harmageddon á X-inu útvarpsstöð þann 4. febrúar, smellið á myndina til að heyra viðtalið.

  • Ef verðbólgan eykst þá græðir ríkið

    Verðbólga og króna

    Viðtal í Bítinu á Bylgjunni þann 9. janúar 2013.  Rætt um ýmis efnahagsmál, krónu, verðtryggingu og fleira.

  • Vikulokin á Rás 1

    Vikulokin 7. desember 2013

    Í þættinum vikulokin á Rás 1 þann 7. desember í umsjón Hallgríms Thorsteinssonar. Smellið á myndina til að hlusta á þáttinn.

  • Umræður um skuldaleiðréttingu í Kastljósi

    Kastljós 2. des 2013

    Rætt var um skuldaleiðréttingu sem kynnt var 30. nóvember af ríkisstjórn,  í Kastljósi þann 2. desember 2013. Smellið á myndina til að sjá á þáttinn.

  • Afhverju eru stýrivextir ekki lækkaðir?

    Viðtal á Bylgjunni
    Í viðtali hjá Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þann 1. nóvember, þar sem rætt var um stýrivexti.