Fjárfestirinn George Soros segir í nýrri bók „The Tragedy of the European Union“ að bankar séu orðnir sníkjudýr (e. parasite) á raunhagkerfinu.
Soros bendir á að í Bretlandi hafi hlutur fjármálageirans náð 35% af öllum hagnaði í landinu. Soros finnst þetta fáránlega stórt hlutfall. Hann segir jafnframt að ekkert hafi verið unnið á rótum evruvandans og hann telur vel hugsanlegt að Þýskaland muni yfirgefa myntbandalagið. (meira…)


Evruríkið Kýpur lenti í efnahagslegu áfalli og glímir nú við afleiðingar þess. Aðild að myntbandalagi reyndist því ekki sú trygging gegn efnahagshruni sem margir hafa haldið.
Þrátt fyrir alvarlegt efnahagsáfall, fjármagnshöft og talsverðan áróður gegn íslensku krónunni benda
Mbl.is flytur
Niðurstaða nefndar um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum er einróma sú að verðtrygging sé skaðleg og hana þurfi að afnema. Nefndin klofnaði hins vegar í afstöðu sinni til þess hversu hratt eigi að afnema verðtrygginguna. Minnihluti nefndarinnar leggur til afnám strax á miðju ári, en meirihlutinn vill afnema verðtryggingu í áföngum og taka fyrsta skrefið næstu áramót. Þingið þarf því að velja á milli þessara valkosta. Í þessum pistli skoða ég helstu rök meirihlutans gegn afnámi í einu skrefi og set fram mótrök gegn þeim.