Skip to content

Frosti Sigurjónsson

  • HEIM
  • BÆKURBókabúð
  • RÁÐGJÖF
  • UM FROSTA
  • GREINAR
  • VIÐTÖL
  • ERINDI
  • HAFÐU SAMBAND
  • ENGLISH
  • Um aðskilnað viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfsemi

    restore-glass-steagallFrá því fjármálakreppan skall á hefur krafan um aðskilnað viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfsemi verið talsvert áberandi. Fjöldi sérfræðinga og nefnda í mörgum löndum hafa fjallað um málið en niðurstaðan hefur ekki verið einhlít um hve langt þurfi ganga í aðskilnaði. Lögum og reglum hefur verið breytt til að draga úr áhættu í bankarekstri og efla fjármálastöðugleika en hvergi hefur verið ráðist í að aðskilja viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfsemi enn sem komið er. (meira…)

    28. mars, 2016
  • Monetary reform report translated to Japanese

    Screen Shot 2016-02-28 at 11.40.04The report titled „Monetary reform – A better monetary system for Iceland“ which I delivered to the Prime Minister in March 2015 has now been translated to Japanese. The Japanese translation is titled „通貨改革 – アイスランドのためのより優れた通貨制度„.

    The translation is the initiative and result of a voluntary effort by Mr. Kenji Hayakawa. He hopes that the translated report can be of use to Japanese politicians, scholars, and future policy makers. 

    I would like to express my sincere gratitude to Kenji Hayakawa for contributing his time and skills with such generosity. It would make me very happy indeed if his translation can be of use in Japan.

    28. febrúar, 2016
  • 通貨改革 – アイスランドのためのより優れた通貨制度

    Screen Shot 2016-02-28 at 11.40.04Það er gaman að segja frá því að skýrsla mín um umbætur á peningakerfi Íslands er nú komin út í japanskri þýðingu. Þýðingin var unnin af Kenji Hayakawa í þeirri trú að hún geti orðið gagnlegt innlegg í umræðuna um umbætur í peningamálum Japans. Kenji á miklar þakkir skildar fyrir frumkvæðið og þýðinguna sem hann vann í sjálfboðavinnu.

    Hér er hægt að hlaða niður japönsku útgáfunni 通貨改革 – アイスランドのためのより優れた通貨制度 á pdf formi. 

    28. febrúar, 2016
  • Er alveg sjálfsagt að einkavæða bankana?

    Screen Shot 2016-01-29 at 20.09.49Ríkið á í dag 98,2% hlut í Landsbankanum, 22,6% hlut í Arion banka og fljótlega mun ríkið eignast Íslandsbanka að fullu. Þá verður bankakerfið í landinu að ¾ hlutum í eigu ríkisins. Er það gott eða slæmt? Hver eru rökin með og móti einkavæðingu í þetta sinn? (meira…)

    29. janúar, 2016
  • Athugasemdir við Stöðuskýrslu Bankasýslu Ríkisins

    Screen Shot 2016-01-12 at 21.33.31Í Stöðuskýrslu Bankasýslu Ríkisins varðandi eignarhald og sölu á Landsbankanum er fjallað um efnið frá ýmsum hliðum og er komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að hefja söluferlið. Í inngangi skýrslunnar er kallað eftir ábendingum um innihald skýrslunnar og hér koma mínar hugleiðingar um skýrsluna og niðurstöður hennar. (meira…)

    12. janúar, 2016
  • Ísland og Innviðafjárfestingabanki Asíu

    signingceremonyMeð fjáraukalögum 2015 fékk fjármálaráðuneytið heimild til að skuldbinda ríkissjóð um 2,3 milljarða (USD 17.6 milljónir) vegna kaupa á hlut í Innviðafjárfestingabanka Asíu (IFBA). Í þingræðu um fjáraukalög mælti ég eindregið gegn þessari ráðstöfun enda er ávinningur af henni mjög óviss en auk fjárframlagsins krefjast samþykktir bankans þess að IFBA og starfsmenn fái sérstök fríðindi og undanþágur frá lögum og eftirliti. Vandséð er að veita megi slíkar undanþágur án sérstakrar heimildar Alþingis og slík heimild hefur ekki enn verið veitt. Þrátt fyrir heimildarleysi er Ísland í hópi 50 ríkja sem undirrituðu samþykktir IFBA í júní 2015. (meira…)

    26. desember, 2015
  • Fjárlög 2016: Hvernig má spara 20 milljarða án þess að draga úr þjónustu

    frostitalarÍ ræðu minni um fjárlög 2016 stakk ég upp á nokkrum sparnaðarleiðum sem samanlagt gætu skilað 20-30 milljörðum. Slík fjárhæð myndi duga til að stórbæta lífskjör aldraðra og öryrkja, tryggja Landsspítalanum aukið fé og auk þess lækka skuldir ríkisins. En hvernig er þetta hægt? Það er inntak ræðunnar sem fylgir hér óbreytt: (meira…)

    15. desember, 2015
  • Aukinn séreignasparnað í stað hærri stýrivaxta

    Screen Shot 2015-11-29 at 20.52.12Frá aldamótum hefur Seðlabankinn aðallega reitt sig á stýrivaxtatækið til að halda verðlagi stöðugu. Því miður fylgja hækkandi stýrivöxtum neikvæðar aukaverkanir, einkum þegar stýrivextir hér eru hærri en í öðrum löndum. Þess vegna er brýnt að innleiða fleiri stýritæki svo Seðlabankinn geti dregið úr ofnotkun stýrivaxtatækisins. Hér verður rætt um hvernig mætti nota breytilegan séreignasaparnað til sveiflujöfnunar. (meira…)

    29. nóvember, 2015
  • Ísland taki afstöðu gegn viðskiptaþvingunum

    Ísland er eitt af þeim ríkjum sem eiga sérstaklega mikilla hagsmuna að gæta af því að milliríkjaviðskipti séu án allra þvingana. Ríflega 53% af þjóðarframleiðslu Íslands er í formi útflutningstekna. Þetta er mjög hátt hlutfall í alþjóðlegum samanburði. Í Bandaríkjunum eru útflutningstekjur aðeins 12% af þjóðarframleiðslu og líklega er hlutfall útflutnings hjá Evrópusambandinu litlu hærra. Bandaríkin og ESB fórna því hlutfallslega margfalt minni hagsmunum en Ísland með því að taka þátt í efnahagsþvingunum. (meira…)

    29. október, 2015
  • Vil ég fá áfengi í matvöruverslanir? (Þingræða)

    Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Verði frumvarpið að lögum mun sala á áfengi færast frá ÁTVR til matvöruverslana.

    Ef gerð væri könnun meðal landsmanna og spurt, “Vilt þú geta keypt áfengi í matvöruverslunum?” þá myndu eflaust margir svara því játandi. En hverju þeir svara ef spurningin væri orðuð með eftirfarandi hætti:

    Vilt þú geta keypt áfengi í matvöruverslunum, ef fjöldi rannsókna sýna að það muni leiða til aukinnar áfengisneyslu? Aukin neysla auki tíðni alvarlegra sjúkdóma eins og krabbameins, lifrarsjúkdóma, sykursýki. Rannsóknir sýna einnig að aukinni neyslu áfengis fylgir aukin tíðni umferðarslysa og einnig ofbeldis meðal annars gegn konum og börnum.

    Ef spurningin er sett fram með þessum hætti hygg ég að flestir myndu telja afleiðingarnar of neikvæðar og leggjast gegn því að áfengi fari í matvöruverslanir. (meira…)

    8. október, 2015
←Previous Page
1 … 3 4 5 6 7 … 26
Next Page→

Your cart (items: 0)

Products in cart

Vara Details Samtals
Samtals 0 kr.
Shipping, taxes, and discounts calculated at checkout.
Skoða körfuna mína
Halda áfram í greiðslu

Karfan þín er tóm

Byrja að versla

Notifications