Sá misskilningur virðist nokkuð útbreiddur að meiri hluti inn- og útflutnings Íslands sé í evru en það er rangt. Ísland flytur ríflega tvöfalt meira út í dollar en í evru. Innflutningur er einnig meiri í dollurum en evrum. Þessi misskilningur gæti stafað af því hve miklu af útflutningi er umskipað í Hollandi sem er evruland. En sá útflutningur er að miklu leiti í dollurum og endanlegur áfangastaður ekki Holland nema að litlu leiti. Hér má sjá línurit sem sýnir hlutfallslega skiptingu út- og innflutnings árið 2012 eftir verðmæti.
Hagstofan heldur utan um skiptingu út- og innflutnings eftir gjaldmiðlum og hægt að skoða hana hér á vefsíðu Hagstofunnar. Framsetningin gæti reyndar verið villandi því heiti gjaldmiðlanna koma ekki fram, heldur nöfn þeirra landa sem gefa út gjaldmiðlana. Vonandi bætir Hagstofan úr því fljótlega.
Það kemur á óvart hér að einhverjir hafa flutt inn vörur eða þjónustu fyrir 35 mia og borgað með krónum. Er ekki líklegt að sá sem fékk krónurnar hafi farið með þær aftur til Íslands fjárfestingaleiðina á 20% afslætti? Hvað sem því líður, þá finnst mér löngu tímabært að loka fyrir þá mismunun að sumir geti fengið krónur á lægra verði en aðrir.

Grein þessi birtist í
Góðar fréttir! Í dag var leiðréttingarfrumvörpum ríkisstjórnarinnar dreift á Alþingi. Aðgerðirnar munu ná til allt að 100 þúsund heimila og heildarumfang leiðréttingarinnar verður allt að 150 milljarðar. Umsóknarferlið verður einfalt og byrjað að taka á móti umsóknum 15. maí og hægt að sækja um til 1. sept 2014. Leiðréttingin verður í haust, fljótlega eftir að umsóknarfresti lýkur. Það verður opnað fyrir greiðslu inn á séreignasparnaðinn þann 1. júli.
Grein sem birtist í DV-kjallari þann 25. mars 2014:
Fyrir nokkru síðan 
Í
Seðlabankar Evrópu, Bandaríkjanna, Þýskalands, Frakklands, Hollands, Eistlandi, Rússlands, Indlands, Ísrael, Ástralíu, Nýja Sjálands og víðar hafa séð ástæðu til að vara almenning við þeirri áhættu sem fylgir Bitcoin og sambærilegum sýndargjaldmiðlum.
Fjárfestirinn George Soros segir í nýrri bók „