Frétt um ICESAVE og þjóðaratkvæðagreiðslu birt á vef ruv.is þann 20. febrúar 2011.
Frosti Sigurjónsson
-
Synjun sífellt líklegri – frétt á ruv.is
Frétt varðandi ICESAVE birt á ruv.is þann 16. febrúar 2011.
Frosti Sigurjónsson, talsmaður undirskriftasöfnunar gegn Icesave-samningnum, www.kjosum.is, telur að líkurnar á því að forsetinn hafni Icesave aukist sífellt. Hann telur að ekki sé mikið um falskar undirskriftir á vef hópsins. Magnús Árni Skúlason, talsmaður Indefence, segir að þingmenn hafi ekki staðið sig sem skyldi og hefði átt að vera kleyft að tryggja ríkari aðgang Íslendinga að eignum úr þrotabúi Landsbankans. (meira…)
-
Kjósum.is þar sem kosið var gegn Icesave.
Frosti í viðtali hjá Heimi og Kollu í Bítinu á Bylgunni þann 15. febrúar 2011.
-
Evrópusambandið er ólýðræðislegt bákn
Í Evrópusambandinu er lagasetning í höndum framkvæmdastjórnarinnar, sem er skipuð 27 fulltrúum sem eru ekki kosnir, heldur tilnefndir af aðildarríkjum. Framkvæmdastjórnin ein hefur vald til að leggja fram lagafrumvörp og hún hefur auk þess allt framkvæmdavald. Þrískipting valdsins er því ekki fyrir hendi.Evrópuþingið hefur ekki vald til að leggja fram lagafrumvörp. Þingið hefur aðeins eftirlit með framkvæmdastjórninni og samþykkir lagafrumvörp hennar. Þingið getur ekki gert breytingar á lagafrumvörpum, og þarf hreinan meirihluta þingmanna til að stöðva frumvarp. Til að lýsa vantrausti á framkvæmdastjórnina þarf ⅔ þingsins. (meira…) -
Viðtalið við Lárus Blöndal
Fréttablaðið birti þann 5. febrúar viðtal við Lárus Blöndal undir fyrirsögninni “Dómsmál margfalt áhættusamara”. Margt er undarlegt í þessu viðtali en það hefst þannig:Stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi kunna að fá bakþanka vegna þeirra vaxtakjara sem þau hafa boðið Íslendingum í Icesave-deilunni. Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður og fulltrúi stjórnarandstöðunnar í samninganefnd Íslands um Icesave, segir það umfram hans væntingar að náðst hafi saman um þau vaxtakjör sem Íslendingum bjóðast í samningnum.Lárus áréttar að íslenska samninganefndin líti þannig á að Bretar og Hollendingar taki þátt í fjármagnskostnaði með Íslendingum. Þeir kynni málið hins vegar þannig heima fyrir að þeir séu að fá endurgreitt lán. -
Icesave: Þriðja leiðin leysir vandann
Nú hafa samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands tekist á og komist að niðurstöðu sem felur í sér mikla áhættu fyrir þjóðina þótt hún sé minni en í fyrri samningum. Ríkisstjórnin vill bjóða þinginu og þjóðinni að velja á milli tveggja slæmra kosta, að samþykkja þennan hættulega Icesave-III samning eða láta málið vera í uppnámi.En þjóðin á fullan rétt á þriðja valkostinum sem líklega myndi leysa deiluna. Þriðja leiðin er sú að samþykkja samninginn með fyrirvörumsem fyrirbyggja að greiðslan verði hærri en þjóðin kærir sig um.1) Áhættan af því að samþykkja Icesave-III (mikil)Samningsaðilar virðast hafa væntingar um að tjón Íslands verði um 50 milljarðar króna. Það jafngildir 167 þúsund krónum á mannsbarn. (meira…) -
Evruvandinn: Ísland þarf viðbragðsáætlun
Á meðan ríkisstjórnin keppir að því að koma Íslandi í Evrópusambandið, svo hér megi taka upp evru, hrannast óveðursskýin upp yfir myntbandalaginu.Líkur á endalokum evrusamstarfsins eru enn sem komið er taldar litlar, en kannski meiri líkur á að evrusvæðinu verði skipt í tvo hluta. Hvers kyns breytingar af þessu tagi myndu þó hafa víðtækar afleiðingar um allan heim og líka hér á Íslandi. -
Gleymd skýrsla Stiglitz um peningastefnu fyrir Ísland
Í nóvember árið 2001 afhenti hagfræðingurinn Joseph Stiglitz Seðlabanka Íslands skýrslu um peningastefnu fyrir smá og opin hagkerfi með sérstökum ráðleggingum fyrir Ísland. Nú blasir við að ef ráðgjöf Stiglitz hefði verið tekin alvarlega hefði mátt afstýra hruninu hér á landi, eða í það minnsta draga mjög úr því tjóni sem varð. Margt í skýrslunni á jafn vel við í dag og árið 2001.Stiglitz, sem var um skeið aðalhagfræðingur Alþjóðabankans er nú prófessor hjá Columbia háskóla. Hann er í hópi virtustu hagfræðinga heims og hlaut árið 2001 Nóbelsverðlaun í hagfræði.Í skýrslu sinni fyrir Seðlabankann fjallar Stiglitz almennt um hættur í smáum, opnum hagkerfum og hvernig megi draga úr þeim. (meira…) -
Er Grænland í hættu?
Í júní árið 2009 fékk grænlenska þjóðin lögsögu yfir náttúruauðlindum sínum en þær höfðu fram til þess dags tilheyrt Danaveldi. Náttúruauðlindir Grænlands eru gríðarlegar. Landið er meira en 2 milljónir ferkílómetrar. Núna eru 81% lands undir íshellu en því er spáð að hún muni hörfa hratt á næstu áratugum. Undan ströndum Grænlands má finna auðug fiskimið og mikla olíu en auk þess er landið auðugt af góðmálmum og jafnvel eðalsteinum. Nóg er af hreinu vatni og virkjanleg vatnsorka hlýtur að vera umtalsverð. (meira…) -
Valkreppa aðalsamningamanna gagnvart ESB
Það virðist algengt að aðalsamningamenn þeirra þjóða sem nýlega hafa gengið í Evrópusambandið, taki við æðstu embættum í sambandinu. Nokkrir þeirra hafa orðið fulltrúar í framkvæmdastjórn sambandsins, en lengra verður vart náð í Brussel enda launakjörin í samræmi við það.Þessi háttur Evrópusambandsins, að bera aðalsamningamenn aðildarríkja á gullstóli í kjölfar aðildar, setur okkar ágæta aðalsamningamann í nokkuð undarlega stöðu. (meira…)



