Frosti Sigurjónsson

  • Erindi til Innanríkisráðuneytis vegna kynningarátaks ESB á Íslandi

    innanrikisraduneytidEftirfarandi erindi var sent Innanríkisráðuneytinu 4. mars sl. Ráðuneytið hefur staðfest viðtöku og ráðherrann sagt í fjölmiðlum að erindið sé komið í vinnslu.

    Hr. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra

    Sölvhólsgötu 7

    150 Reykjavík

    Erindi: Er kynningarstarf Evrópusambandsins á Íslandi lögbrot?

    Evrópusambandið fjármagnar Evrópustofu sem tók til starfa 21. janúar á þessu ári og hefur það markmið að “stuðla að aukinni umræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starfsemi ESB.” Evrópusambandið leggur Evrópustofu til 1,4 milljónir evra á tveim árum. Evrópustofa gefur út kynningarefni í bæklingum og öðru formi til dreifingar. Evrópustofa hefur staðið að fjölda kynningarfunda víða um landið. Meðal framsögumanna er sendiherra ESB, (t.d. á opnun fundi um ESB á Akureyri 29. febrúar sl.) (meira…)

  • Hvers vegna væri skynsamlegt að leggja aðildarumsóknina til hliðar?

    Frosti Sigurjónsson á laugardagsfundi í Grasrótarmiðstöðinni 1. mars 2012 þar sem hann svarar spurningunni: Hvers vegna væri skynsamlegt að leggja aðildarumsóknina til hliðar?

  • Hugsum út fyrir boxið og tökum upp alveg nýtt fjármálakerfi.

    Harmageddon

    Frosti ræðir við Frosta og Þorkeli Mána á Harmageddon um nýtt fjármálakerfi þann 17. febrúar 2012.

  • Hver greiddi ferðina til Sardiníu?

    sardinia_kort
    Sardinía

    Á 19. öld ákvað ónafngreindur breskur lávarður að heimsækja hina fögru miðjarðarhafseyju Sardiníu, ásamt fjölskyldu sinni og þjónustufólki. Ferðalagið gekk eins og í sögu. Lávarðurinn og fylgdarlið hans gisti aðeins á bestu hótelum og snæddi aðeins á bestu matstöðunum – ekkert var sparað.

    Eyjaskeggjar tóku að sjálfsögðu vel á móti þessum forríku ferðamönnum. Lávarðurinn ákvað líka að framlengja dvölina um tvo mánuði. Kostnaðurinn var að sjálfsögðu verulegur. Alls staðar greiddi lávarðurinn með ávísunum í pundum á viðurkenndan breskan banka. Ávísunum lávarðsins var vel tekið, enda voru þær í pundum og á þessum árum var gjaldmiðill eyjaskeggja ekki upp á marga fiska. (meira…)

  • Hvers vegna þarf að fegra ESB?

    vissirthu Já Ísland, vettvangur evrópusinna, birti heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu 19. nóvember. Fyrirsögnin er “Vissir þú?” og svo eru settar fram ýmsar upplýsingar sem eiga að sannfæra lesandann um ágæti þess að ganga í ESB. En er hægt að treysta þessum upplýsingum? Skoðum það.

    “Að 2,5% Íslendinga skrifuðu undir áskorun um að draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka, sem staðið hefur yfir síðan í byrjun september.”
    >Nú hafa hátt í 9.000 skrifað undir áskorun www.skynsemi.is  Sá fjöldi myndi duga til að fylla Austurvöll og daglega bætast fleiri í hópinn þótt lítið sé auglýst. Aðildarsinnar láta hér í veðri vaka að 97.5% þjóðarinnar hafi ekki hug á því að skrifa undir áskorunina.
  • Lissabon sáttmálinn fegraður í þýðingu

    560145Lissabon sáttmálinn hefur verið þýddur á Íslensku. Sáttmálinn lýsir réttindum og skyldum aðildarríkja í smáatriðum. Þess vegna er mikilvægt að þýðingin sé vönduð og nákvæm en því miður virðist það markmið ekki hafa náðst. Hér eru nokkur dæmi:

    2. KAFLI, SÉRTÆK ÁKVÆÐI UM SAMEIGINLEGA STEFNU Í UTANRÍKIS- OG ÖRYGGISMÁLUM, 1. ÞÁTTUR ALMENN ÁKVÆÐI, 24. gr :

    “Þau skulu forðast að gera nokkuð það sem vinnur gegn hagsmunum Sambandsins eða kynni að skaða áhrif þess sem afls í þágu samheldni í alþjóðasamskiptum.”

    „They shall refrain from any action which is contrary to the interests of the Union or likely to impair its effectiveness as a cohesive force in international relations.“

    Þetta er rangt þýtt því „Cohesive force in international relations“ þýðir “samheldið afl í alþjóðasamskiptum”, en alls ekki “afl í þágu samheldni í alþjóðasamskiptum”. (meira…)

  • Fréttum er hagrætt

    Í aðdraganda Icesave kosninga gat verið erfitt fyrir kjósendur að finna hlutlausar fréttir og upplýsingar til að byggja atkvæði sitt á. Fréttablaðið og Morgunblaðið voru augljóslega á öndverðum meiði og það skilaði sér í fréttaflutningi þeirra af málinu. Jafnvel RÚV, sem á samkvæmt lögum að gæta fyllstu hlutlægni, tókst ekki að uppfylla skyldu sína að því leiti.

    Það getur verið erfitt að koma auga á það hvenær fréttamiðill hagræðir fréttum og hvenær ekki. Sé það gert á augljósan hátt missir fréttin trúverðugleika og þar með áhrifamátt sinn. Þess vegna þurfa fréttamiðlar að fara fínt í allt slíkt. Aðferðirnar eru nokkuð vel þekktar. Hér eru nokkur dæmi um aðferðir sem hérlendir fréttamiðlar hafa beitt til að “hagræða” fréttum í því skyni að fá fram “rétta” niðurstöðu í Icesave og ESB málum: (meira…)

  • Langflestir segja eindregið nei.

    RS

    Frosti í viðtali hjá Reykjavík síðdegis á Bylgunni þann 9. september 2011.