Nokkur bifreiðaumboð eru farin að auglýsa „vaxtalaus“ bílalán. Þegar betur er gáð þá eru vaxtalausu lánin alls ekki ókeypis. Því „vaxtalaus“ lán frá bifreiðaumboði bjóðast bara þeim sem sætta sig við að fá ekki afslætti eða aukahluti í kaupbæti sem bjóðast þeim sem staðgreiða eða greiða með venjulegu bílaláni.
Það geta vart talist góðir viðskiptahættir að auglýsa að lán sé vaxtalaust ef neytandinn greiðir ígildi vaxta með öðrum hætti.
Í lögum 33 frá 2013 um neytendalán er sú skylda lögð á lánveitendur að birta lántakendum árlega hlutfallstölu kostnaðar. Þar er átt við vexti, lántökukostnað, lántökugjöld, seðilgjöld ofl. Ákvæðinu er ætlað að auðvelda neytendum að gera samanburð á heildarkostnaði ólíkra lána og þannig stuðla að virkari samkeppni.
Bifreiðaumboð sem auglýsa vaxtalaus lán hafa mér vitanlega ekki birt lántakendum árlega hlutfallstölu kostnaðar af þeim lánum. Sé það ekki gert þarf að bæta úr því. Ég vil ekki trúa því að bifreiðaumboðin vilji sniðganga lög um neytendavernd.
Vaxtalaus lán bílaumboða geta verið álíka óhagstæð og hefðbundin vaxtaberandi bílalán eins og þetta dæmi sýnir: Tiltekinn bíll er til sölu á listaverði sem er 10 milljónir króna. Afsláttur og aukahlutir sem bjóðast við staðgreiðslu eru metnir á samtals 800 þúsund krónur. Umboðið býður kaupanda vaxtalaust lán upp á 40% af verðinu til 3 ára, en þá býðst hvorki afsláttur né aukahlutir. Lánið er þá 4 milljónir og óbeinn kostnaður þess er 800 þúsund. Þetta vaxtalausa lán virðist meinleysislegt, en árleg hlutfallstala kostnaðar er samt heil 13% Það er svipaður kostnaður og er á bílalánum sem bera vexti.
Það er ekki góð þróun ef uppgefið söluverð bíla og annara neysluvara fer að innifela kostnað af vaxtalausu láni til einhverra ára. Það mun aðeins þýða að verðlag mun verða hærra en annars væri. Það mun svo hafa áhrif til hækkunar á neysluvísitölu og hærri neysluvísitala hækkar skuldir heimilanna. Hvert eitt prósent sem neysluvísitalan hækkar kostar heimilin 14 milljarða í hækkun verðtryggðra íbúðalána.
Það er heldur ekki gott að neytendur séu að kaupa neysluvarning eins og bíla á lánum. Vextir af neyslulánum eru gríðarlega háir og varningurinn fellur hratt í verði eftir kaupin. Það er mun æskilegra að safna fyrir neysluvörum og staðgreiða þær.