Almennt

  • Hitamál fá hlýjar viðtökur

    Bókin Hitamál kom loksins úr prentun 4. desember og síðan hefur hún rokið út. Fyrsta prentun kláraðist á nokkrum dögum en fólkið hjá Litlaprent brást skjótt við og prentaði meira.

    Bókin fæst keypt hér á vefnum sem kilja, rafbók og hljóðbók og fyrir stuttu kom hún í bókaverslanir Pennin Eymundsson á höfuðborgarsvæðinu.

    Margir hafa haft samband til að hrósa bókinni og færa þakkir fyrir að koma þeim sjónarmiðum á framfæri sem í henni eru. Morgunblaðið minntist á bókina á forsíðu þann 8. desember sl. en í því blaði var viðtal við mig um efnið. Þann 10. var rætt um bókina í ritstjórnargrein:

    Screenshot
  • Hitamál – Glóðvolg bók um loftslagsmálin

    Hitamál - kápumynd

    Loftslagsmálin hafa á örfáum árum orðið eitt stærsta viðfangsefni samfélagsins. Stefnan á kolefnishlutleysi kallar á sífellt umfangsmeiri og kostnaðarsamari aðgerðir í trausti þess að vísindin séu hafin yfir vafa.

    Það er staðreynd að jörðin hefur hlýnað og að koltvísýringur hefur aukist. En vísindamenn eru ekki sammála um hversu stór hluti hlýnunarinnar skýrist af náttúrulegum sveiflum, losun manna eða samspili beggja. Loftslag jarðar er flókið kerfi þar sem margir þættir verka saman þar á meðal skýjahula, hafstraumar, mengun og sólvirkni. Koltvísýringur skiptir máli, en er aðeins einn þáttur af mörgum.

    Hitamál fjallar um þetta og sögu loftslagsbreytinga, óvissu í mælingum, spár sem hafa brugðist, vafasöm úrræði til að draga úr losun og aukaverkanir íþyngjandi regluverks. Bókin byggir á fjölda rannsókna og heimilda og dregur fram gögn sem vekja spurningar.

    Hitamál er bók fyrir þá sem vilja íhuga hvort núverandi stefna í loftslagsmálum sé raunhæf eða hvort kominn sé tími til að huga að öðrum leiðum.

    Bókin er í prentun og verður tilbúin til afhendingar 1. desember og á sérstöku tilboði í forsölu. Rafbókin er tilbúin og til afhendingar strax.

    Smelltu hér til að fara í Bókabúð FS og panta eða kaupa.

  • Um stóíska ró

    Stóismi er forngrísk og rómversk heimspeki sem boðar stjórn á sjálfum sér og þolgæði til að sigrast á eyðileggjandi tilfinningum.

    Stóisminn boðar að dyggðir (visdómur, hugrekki, réttlæti og hófsemi) séu atriði sem leiði til hamingjuríks lífs. Flest annað svo sem auður, heilsa eða orðspor sé hvorki góð né slæm en ekki eftirsóknarverð í sjálfu sér.

    (meira…)
  • Vaxtalaus bílalán eru ekki ókeypis

    gildrapeningarNokkur bifreiðaumboð eru farin að auglýsa „vaxtalaus“ bílalán. Þegar betur er gáð þá eru vaxtalausu lánin alls ekki ókeypis. Því „vaxtalaus“ lán frá bifreiðaumboði bjóðast bara þeim sem sætta sig við að fá ekki afslætti eða aukahluti í kaupbæti sem bjóðast þeim sem staðgreiða eða greiða með venjulegu bílaláni. (meira…)

  • Efasemdir um nýtt fangelsi á Hólmsheiði

    Ég verð að játa að ég hef efasemdir um að rétt sé að hefja byggingu fangelsis á Hólmsheiði, sem uppfyllir ýtrustu kröfur á sama tíma og heilbrigðiskerfi okkar riðar til falls. Hér er vonandi málefnalegt innlegg í þá umræðu.

    Nýja fangelsið myndi kosta um 2 milljarða fullbúið með 56 klefum. En á sama tíma verða lagðir niður 28 klefar í fangelsum á Kópavogi og á Skólavörðustíg þannig að viðbótin yrði aðeins 28 klefar. (meira…)

  • Sérstaða Íslands: Ekkert moskító

    Moskítóflugan gerir ferðamönnum lífið leitt í flestum löndum öðrum en Íslandi og reyndar Færeyjum og Falklandseyjum líka. Eins og margir þekkja veldur bit moskítóflugunnar verulegum óþægindum og í sumum löndum getur það borið með sér alvarlega sjúkdóma.

    All margir munu hafa ofnæmi fyrir moskítóbiti. Svo eru alltaf þessir óheppnu, líklega einn af hverjum tíu, sem virðist hafa sérlega bragðgott blóð og eru útstungnir þótt aðrir sleppi við bit. Bjóðum þetta fólk, og alla sem vilja vera lausir við moskító, velkomna í ferðalag til Íslands þar sem hægt er að eiga moskítólaust sumarfrí á fallegum stað.

    Ísland hefur að mínum dómi alls ekki gert nóg af því að kynna sig sem moskítólaust land. Þessi sérstaða landsins er á fárra vitorði, en ef hún væri kynnt skipulega gæti það laðað hingað fleiri ferðamenn.

    Heimildir: 

    Vísindavefurinn: Hvaða lönd eru moskítólaus?

    Wikipedia: Moskito

     

  • Heilbrigðiskerfið njóti forgangs

    robotFlestir eru á þeirri skoðun að björgun mannslífa eigi að vera forgangsmál og að veikum og slösuðum verði ávallt veitt besta læknisaðstoð og lyf sem völ er á. Standa beri vörð um heilbrigðiskerfið og tryggja því forgang umfram flest önnur verkefni ríkisins. (meira…)

  • Spara mætti 100 milljarða með því að hraða rafbílavæðingu

    chevrolet_volt_210Árlega er flutt inn eldsneyti fyrir 10 milljarða til að knýja einkabíla landsmanna. Nú eru loksins að koma rafmagnsbílar á markað sem komast meira en 150 km á einni hleðslu og útskipting bílaflotans getur hafist.

    Það eru 200 þúsund einkabílar í landinu og það gæti tekið allt að 30 ár að skipta þeim flota út fyrir rafbíla. Þá er miðað við að 30% af nýjum innfluttum bílum séu rafbílar. (meira…)