Í umræðu um stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu er mikilvægt að gera greinarmun á stöðu umsóknarríkis (e. applicant) og inngönguríkis (e. candidate).
Með umsóknarríki er átt við ríki sem hefur lagt fram gilda umsókn um aðild. Með inngönguríki er átt við ríki sem hefur verið samþykkt inn í stækkunarferli sambandsins. Til að hljóta stöðu inngönguríkis þarf umsóknarríki að hljóta jákvæða umsókn framkvæmdastjórnar ESB og í framhaldi af því einróma samþykki leiðtogaráðs ESB.
Umsókn Íslands
Ísland lagði fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu 17. júlí 2009. Samkvæmt 49. grein sáttmálans um Evrópusambandið getur evrópskt ríki sem virðir grunngildi sambandsins sótt um aðild. Evrópusambandið gerir ekki kröfu um að slík umsókn byggi á þingsályktun eða þjóðaratkvæðagreiðslu. Skrifleg umsókn frá ríkisstjórn viðkomandi lands nægir.
Framkvæmdastjórnin skilaði jákvæðu áliti um umsókn Íslands 24. febrúar 2010 og mælti með að aðildarviðræður yrðu hafnar. Hinn 17. júní 2010 samþykkti leiðtogaráð ESB að Ísland yrði inngönguríki. Formlegar aðildarviðræður hófust 27. júlí sama ár.
Viðræður sigldu í strand
Í byrjun árs 2013 sigldu viðræðurnar í strand. Eftir kosningar sama ár tók við ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem báðir voru andvígir aðild.
Í mars 2015 tilkynnti ríkisstjórn Íslands Evrópusambandinu formlega að hún hygðist ekki halda aðildarviðræðunum áfram. Jafnframt lýsti ríkisstjórnin þeirri afstöðu að Ísland skyldi ekki lengur teljast inngönguríki (e. candidate country).
Evrópusambandið tók þá afstöðu til greina og undanfarin 12 ár hefur Ísland ekki verið á listum ESB yfir samþykkt inngönguríki.
Hvert er vægi umsóknarinnar frá 2009?
Umsókn Íslands frá 2009 var ekki formlega afturkölluð og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, staðfesti í heimsókn til Íslands árið 2025 að umsóknin væri enn gild (e. valid). Það þýðir einfaldlega að hún uppfyllir 49. grein sáttmálans og er frá evrópsku ríki sem virðir grunnreglur sambandsins. Þótt sú umsókn yrði afturkölluð formlega gæti íslensk ríkisstjórn lagt inn nýja og gilda umsókn síðar meir.
Hvort sem Ísland legði inn nýja umsókn í framtíðinni eða ítrekaði eldri umsókn frá 2009 myndi þurfa einróma samþykki allra aðildarríkja til að veita Íslandi stöðu inngönguríkis á nýjan leik.
Er rétt að afturkalla umsóknina?
Þótt umsóknin frá 2009 sé „gild“ þá hefur hún sáralítið efnislegt gildi fyrir aðildarferli Íslands, enda er landið ekki með stöðu inngönguríkis.
Í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem skýr meirihluti kjósenda vill greinilega ekki hefja aðildarviðræður að nýju, hefur umsóknin engan tilgang. Vilji ríkisstjórnin virða lýðræðislega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ætti hún að sjá sóma sinn í því að afturkalla úrelta umsókn í stað þess að gera málið að pólitísku þrætuepli.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 19. september 2026

