Bókin um ESB – hvað er í pakkanum?

Bókin um ESB er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka af­stöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg.

Þetta er ekki bók um kosti og galla aðildar Íslands að ESB, heldur gefur hún greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórn­kerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega er fjallað um eigin­leika tolla­banda­lags ESB, stefnu þess í landbúnaðar- ogsjávarútvegsmálum og einnig um utanríkismál ESB og myntbanda­lag evrunnar.

Áföll eins og fjármálahrun, Brexit, flóttamannavandi og heims­faraldur, sýna styrkleika og veikleika sambandsins og bókin rekur hvernig ESB gekk að vinna úr þeim.

Í byrjun árs 2026 glímdi Evrópusambandið við stór vandamál sem tekin eru til skoðunar í bókinni, svo sem vaxandi lýðræðishalla, öldrun, versn­andi skulda­stöðu, ófjármagnaða lífeyrissjóði, stríð í Úkraínu, hátt orku­verð og ef­na­hags­samdrátt. Á sama tíma hefur fylgispekt aðildar­ríkjanna við stefnu og ýmsar ákvarðanir ESB minnkað.  

Evrópusambandið er nú á krossgötum. Leiðtogar sumra aðildarríkja og æðstu embættismenn ESB segja nauð­syn­legt að ESB verði að sam­bands­ríki og herveldi til að ráða við aðsteðjandi vandamál og treysta stöðuna í sam­keppni stór­velda í framtíðinni.

Þessi bók er skrifuð fyrir þá sem vilja skilja betur hvernig ESB starfar og hverjar áskoranir þess eru í dag, einskonar rýniskýrsla og skyldu­lesning fyrir þá sem vilja vita „hvað er í pakkanum“.

Hér er hægt að kaupa Bókina um ESB.