Frosti Sigurjónsson

  • Tímamótaskýrsla frá AGS

    IMFlogoFyrir fáeinum dögum kom út skýrsla (Working Paper) frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum “The Chicago Plan Revisited” en hún fjallar um endurbætur á fjármálakerfinu sem Irving Fisher og fleiri lögðu fram í kjölfar kreppunnar miklu.

    Skýrsluhöfundar, Benes og Kumhof, setja tillögur Fishers upp í fullkomið haglíkan til að greina afleiðingar þeirra, og komast að þeirri niðurstöðu að endurbæturnar geti einmitt skilað þeim árangri sem Fisher spáði um og gott betur. Rétt er að geta þess að þótt skýrslan sé unnin hjá AGS þá eru höfundarnir ábyrgir fyrir niðurstöðum hennar en ekki AGS. (meira…)

  • Alaska greiðir íbúum auðlindaarð

    Alaska_in_United_States_(US50).svgÍbúar Alaska fá árlega greiddan út arð úr auðlindasjóði ríkisins. Arðgreiðslan er breytileg frá ári til árs en hefur yfirleitt verið á bilinu 120 – 240 þúsund kr á hvern íbúa.

    Alaska er afar ríkt af auðlindum. Olíulindin í Prudhoe Bay gefur sem dæmi um 400 þúsund tunnur af olíu á dag og er afkastamesta olíulind í Norður Ameríku. Alaska á einnig mikið af gasi, kolum, málmum og ágæt fiskimið.

    Árið 1956 þótti ástæða til að setja nýtt ákvæði í stjórnarskrá Alaska. Löggjafanum bæri að sjá til þess að nýting, þróun og varðveisla allra náttúruauðlinda sem tilheyrðu fylkinu, þar á meðal land og vötn, miðaði að hámörkun ábata fyrir fyrir íbúa fylkisins. (meira…)

  • Losun hafta: Þrotabú bankanna greiði alfarið í ISK

    peningabuntEkki er ljóst hvort þrotabú gömlu bankanna greiða kröfuhöfum út í blöndu af gjaldmiðlum og krónum, eða eingöngu krónum. Greiði þrotabúin alfarið út í krónum gefur það Seðlabanka einstakt tækifæri til að leysa gjaldeyrishöftin, um leið og dregið er úr hættu á því að kröfuhöfum þrotabúa verði mismunað.

    Slitastjórnum þrotabúa ber samkvæmt lögum að gera upp allar kröfur í íslenskum krónum. Venjulega fara greiðslur einnig út í krónum, enda dregur það úr líkum á mismunun á milli kröfuhafa vegna gengisbreytinga sem orðið geta á útgreiðslutímabilinu. Þetta skiptir máli því kröfuhöfum verður ekki greitt út á sama tíma. Við þetta bætist að íslenskir kröfuhafar eru skilaskyldir á gjaldeyri en ekki erlendir sem eykur á mismunun verði greitt út í gjaldmiðlum. (meira…)

  • Hugmynd að nýjum skyndibita

    Frosti Sigurjónsson segir það oftast koma í hans hlut að grilla fyrir fjölskylduna.
    Viðtal birtist í Finnur.is
    Frosti Sigurjónsson athafnamaður styður við nýsköpun á sviði tækni, hefur óbilandi áhuga á landsmálum og kann að meta makríl.

    Við Sindri sonur minn kunnum báðir að meta makríl og höfum oft veitt hann og matreitt,“ segir Frosti Sigurjónsson. „Síðastliðið haust stefndi allt í að sá holli og góði fiskur yrði ófáanlegur í verslunum. Við ákváðum þá að útvega frosinn makríl í búðirnar í vetur og neytendur hafa tekið þessari nýjung vel. (meira…)

  • Vond fjárfesting á versta tíma

    vadlaheidiEinhverjir þingmenn og örfáir vinir þeirra hafa þá lífskoðun að það taki heilum níu mínútum of langan tíma að aka Víkurskarð. Þrátt fyrir að leitun sé að fallegra útsýni en ber fyrir augu í þessar níu mínútur, eru þessir menn ekki ánægðir og vilja aka um jarðgöng hvað sem þau kosta.

    Samgöngubætur geta vissulega verið mjög arðbærar en þá aðeins ef tilkostnaðurinn er minni en ávinningurinn. Vaðlaheiðargöng munu kosta níu milljarða að minnsta kosti en munu aðeins spara ökumönnum níu mínútur og vegegerðinni einhvern snjómokstur nokkra daga á ári. (meira…)

  • Erindi um fjármálastefnu og framtíðina

    Frosti dregur saman það helsta varðandi nýtt peningakerfi í fundaröð um fjármálastefnu og framtíðina þann 11.júní 2012.  Það var stjórn SAMSTÖÐU-Reykjavík sem stóð fyrir fundunum vorið 2012. (meira…)

  • Hvernig virkar peningakerfið?

    Bítið

    Frosti í viðtali hjá Heimi og Kollu í Bítinu á Bylgunni þann 24. mai 2012.

  • Vill halda í krónuna en bylta stefnunni í peningamálum

    Frétt á visir.is undir viðskipti 17. maí 2012.

    • Frosti Sigurjónsson segir að bankarnir geti í raun búið til nýjar krónur inn í kerfið með því að lána peninga.
    • Frosti Sigurjónsson

    Frosti Sigurjónsson, rekstarhagfræðingur, segir að það þjóni hagsmunum Íslands best að vera áfram með krónuna, en gjörbylta hagstjórn með því að takmarka vald bankanna til útlána á svokölluðum rafkrónum. Peningvaldið hafi í raun verið fært frá ríkinu til bankanna og þessu þurfi að snúa við.

    Frosti lýsti þessum viðhorfum í Klinkinu nýlega. Hann vill að hér verði innleidd önnur stefna í peningamálum byggð á kenningum bandaríska hagfræðingsins Irving Fisher, (meira…)

  • Frosti í viðtali í Klinkinu

    Klinkid

    Frosti í viðtali á Klinkinu þann 15. maí 2012.

  • Afnám hafta: Umræður á Alþingi

    liljamosesAfnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá að 3. maí síðastliðinn að frumkvæði Lilju Mósesdóttur. Hér verður stiklað á því helsta sem fram kom í þeirri umræðu.

    Lilja Mósesdóttir lýsti því í stuttri framsögu hvernig 1.000 milljarða krónueignir valdi erfiðleikum við afnám hafta. Þessar krónueignir séu skuldir einkaðila við aðra einkaaðila og þær haldi nú áfram að vaxa þar sem nýleg lög banni að flytja verðbætur út fyrir höft. Lilja taldi raunverulega hættu á að þessum skuldum yrði velt yfir á ríkissjóð eða skattgreiðendur. Lilja benti á tvær leiðir sem gætu leitt til þess:

    Í fyrsta lagi svokallaða harðindaleið þar sem höftin væru einfaldlega afnumin og afleiðingin gengishrun krónu. Lilja varaði við því að sú leið myndi strax leiða til verri lífskjara (væntanlega vegna hækkunar verðlags og skulda). (meira…)