Frosti Sigurjónsson

  • Afnám hafta: Umræður á Alþingi

    liljamosesAfnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá að 3. maí síðastliðinn að frumkvæði Lilju Mósesdóttur. Hér verður stiklað á því helsta sem fram kom í þeirri umræðu.

    Lilja Mósesdóttir lýsti því í stuttri framsögu hvernig 1.000 milljarða krónueignir valdi erfiðleikum við afnám hafta. Þessar krónueignir séu skuldir einkaðila við aðra einkaaðila og þær haldi nú áfram að vaxa þar sem nýleg lög banni að flytja verðbætur út fyrir höft. Lilja taldi raunverulega hættu á að þessum skuldum yrði velt yfir á ríkissjóð eða skattgreiðendur. Lilja benti á tvær leiðir sem gætu leitt til þess:

    Í fyrsta lagi svokallaða harðindaleið þar sem höftin væru einfaldlega afnumin og afleiðingin gengishrun krónu. Lilja varaði við því að sú leið myndi strax leiða til verri lífskjara (væntanlega vegna hækkunar verðlags og skulda). (meira…)

  • Grynnri og styttri kreppur takk

    stiglitzFjármálakreppur eru býsna algengar. Um 100 lönd hafa gengið gegnum fjármála- eða gjaldmiðilskreppu á undanförnum 40 árum. Því miður bendir fátt til þess að slíkar kreppur séu úr sögunni. Það mætti vissulega gera ýmislegt til að minnka líkur á kreppum, en í þessum pistli verður hins vegar rætt um hugmynd þeirra Markus Miller’s og Joseph Stiglitz um hvernig megi draga úr því tjóni sem kreppum fylgir.

    Við venjulegar aðstæður er ólíklegt að vel rekin fyrirtæki lendi í gjaldþroti. En þegar efnahagsáfall dynur yfir geta tugir þúsunda aðila lent í vanskilum samtímis óháð því hvernig staðið var að rekstrinum. Gjaldþrotaleiðin er dýr og tekur langan tíma að ljúka hverju búi. Sé sú leið farin með stóran hluta atvinnulífsins, getur það í sjálfu sér leitt til keðjuverkana, þannig að enn fleiri fyrirtæki fari á hausinn, atvinnuleysi verði enn meira og kreppuaástand vari mun lengur. Því má halda fram að þannig tapi kröfuhafar mun meiru en ef þeir hefðu strax gefið afslátt af kröfum sínum og þannig haldið sem flestum fyrirtækjum í rekstri. (meira…)

  • Hvernig gæti krónan orðið betri gjaldmiðill?

    Frosti heldur erindi um krónuna í apríl 2012 á fundi um stöðu krónunnar sem gjaldmiðils og sögur gjaldmiðla.

  • Gjaldmiðill gulli betri

    sedlabankinnEitt mikilvægasta verkefni sem stjórnvöld geta annast fyrir landsmenn er að halda úti traustum gjaldmiðli. Sjálfstæður og vel rekinn gjaldmiðill sem tekur mið af þörfum hagkerfisins á hverjum tíma getur aukið hagvöxt og lífsgæði í landinu verulega umfram það sem mögulegt væri ef hér væri notuð erlend mynt.

    Til mikils að vinna

    Þótt hér hafi orðið bankahrun og krónan bæði ofrisið og hrunið þá má ekki missa móðinn. Allt of margir vilja bara gefast upp. Ísland er ekki eina þjóðin sem hefur fengið skell. Norðmenn og Svíar lentu í bankakreppum á níunda áratugnum en hafa þrátt fyrir það náð góðum árangri í kjölfarið. Það getum við einnig og það ætti að vera okkar staðfasta markmið. (meira…)

  • Ræðir verðsamanburð hópsins „Já Ísland“.

    Reykjavik síðdegis

    Frosti í viðtali hjá Reykjavík síðdegis á Bylgunni þann 4. apríl 2012.

  • Fjölmyntakerfi flókin og dýr

    MyntirFjölmyntakerfi hefur verið nefnt sem einn af valkostunum í gjaldmiðilsmálum Íslands. Slíkt fyrirkomulag myndi fela í sér að fólk og fyrirtæki gæti einfaldlega notað þá mynt sem best hentar á hverjum tíma. Hugmyndin hljómar spennandi enda geta varla nokkur maður verið á móti frelsi til að velja.

    Bent hefur verið á að einhliða upptaka eins erlends gjaldmiðils hefur í för með sér verulegan kostnað og mikla áhættu. Kostnaðurinn felst í því að kaupa til landsins nægilegt magn af seðlum (lágmark 40 milljarða). Áhættan felst einkum í því að núna eru 1000 milljarðar af lausu fé sem vilja fara úr landi og þá myndu 40 milljarðarnir duga skammt. (meira…)

  • Millifærslur í Kanadadölum

    cadKanadadollar er sameiginlegur gjaldmiðill 35 milljón Kanadabúa. Kanada samanstendur af tíu fylkjum og þremur sjálfstjórnarsvæðum.

    Alberta er tekjuhæsta fylkið enda er það með mjög öflugan iðnað og er næst stærsti útflytjandi á jarðgasi í heiminum. Þjóðartekjur á mann í Alberta eru 71 þúsund CAD. Íbúar fylkisins Prince Edward Island stunda hinsvegar landbúnað og útgerð. Þar eru tekjur á íbúa helmingi lægri en í Alberta, aðeins 35 þúsund CAD.

    Hvernig geta svo ólík svæði búið við sama gjaldmiðil? (meira…)

  • Lýðræði okkar er berskjaldað

    Fréttablaðið Skoðun 15. mars 2012

    Frosti Sigurjónsson rekstarhagfræðingur skrifar:

    Kjósendur fá sífellt fleiri tækifæri til að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslum, sem er gott. En um leið er orðið mjög brýnt að setja lög gegn því að valdi og fjármagni verði beitt til að skekkja grundvöll lýðræðisins.

    Fjársterkir aðilar hafa forskot á þá efnaminni þegar kemur að því að fjárfesta í markaðssetningu skoðana. Ef við viljum ekki að aðgangur að fjármagni geti ráðið úrslitum í þjóðaratkvæðagreiðslum þarf að setja lög sem jafna leikinn. (meira…)

  • Frosti ræddi um ESB og peningamál í Silfri Egils.

    Silfur Egils mars 2012.

    Frosti var gestur í Silfri Egils og ræddi um ESB, peningamál og fleira 11. mars 2012.