• Ættu stjórnendur að nota aðstöðu sína í pólitískum tilgangi?

    Flestir hafa skoðanir á pólitík og auðvitað eru stjórnendur fyrirtækja þar engin undantekning. Það kemur stundum fyrir að stjórnendur beiti vörumerki og áhrifum fyrirtækisins til að vinna sínum pólitísku skoðunum fylgi í samfélaginu. Hér er því haldið fram að slíkt sé í misnotkun á aðstöðu og geti leitt til tjóns bæði fyrir eigendur og samfélagið.

    Stórfyrirtæki eru iðulega í eigu fjölmargra hluthafa. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að allir eigendur hafi sömu skoðun í pólitík, hvað þá að meirihluti hluthafa sé sammála pólitískum skoðunum stjórnandans. Tillitsemi við ólíkar skoðanir hluthafa er því gild ástæða fyrir því að stjórnendur gæti hlutleysis í störfum sínum. (meira…)

  • Hvers vegna nei við Icesave.

    Reykjavík síðdegis

    Frosti í viðtali hjá Reykjavík síðdegis þann 31. mars 2011.

  • Hvað er ADVICE?

    Frosti í viðtali hjá INN þann 26. mars 2011.

    Umræðuþáttur á ÍNN þar sem Hallur Hallsson frá Samstöðu þjóðar gegn Icesave ræðir við Frosta Sigurjónsson og Jón Helga Egilsson frá ADVICE.IS

  • Átta lögmönnum svarað

    Frosti Sigurjónsson skrifar um Icesave fyrir hönd ADVICE-hópsins á visir.is þann 23. mars 2011.

    Átta hæstaréttarlögmenn skrifa undir grein sem birt var í Fréttablaðinu 17. mars undir fyrirsögninni „Dýrkeyptur glannaskapur“. Greinarhöfundar segjast ætla að segja já við Icesave en færa fyrir því ýmis rök sem ekki virðast standast nánari skoðun:

    „Með þeim samningum sem þverpólitísk samninganefnd náði og aukinn meirihluti Alþingis studdi er bæði áhætta Íslands og kostnaður lágmarkaður.“

    Vafasamt er að fullyrða að áhætta sé lágmörkuð með samningi sem skuldbindur okkur í erlendum gjaldmiðli ef lög leyfa að annars mætti greiða kröfuna í krónum. Ólíkt kröfum í erlendri mynt geta kröfur í krónum ekki leitt til greiðslufalls ríkisins. Einnig hefur verið bent á að gríðarleg áhætta felst í óvissum endurheimtum úr þrotabúi Landsbankans og gengissveiflum. (meira…)

  • Icesave – Lagalegar afleiðingar synjunar

    Frosti Sigurjónsson skrifar fyrir hönd ADVICE-hópsins á visir.is þann 21. mars 2011.

    Margrét Einarsdóttir forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar HR og LL.M í Evrópurétti fjallar um lagalegar afleiðingar synjunar í samnefndri grein í Fréttablaðinu 17. mars sl. Margrét dregur þar upp afar dökka mynd sem virðist á misskilningi byggð.

    Margrét ,,hallast“ að því að EFTA dómstóllinn muni dæma ríkið brotlegt við EES samninginn, fyrir ,,óbeina mismunun á grundvelli þjóðernis“ og einnig fyrir að „hafa ekki komið á fót innstæðutryggingakerfi hér á landi sem virkaði“. (meira…)

  • Allt misskilningur hjá Moody’s ?

    Moodys-Logo Þegar fyrir lá að Icesave samningurinn yrði settur í þjóðaratkvæðagreiðslu, tók matsfyrirtækið Moody’s upp á því að senda frá sér álit um að lánshæfismat Íslands myndi versna ef landsmenn myndu fella Icesave samkomulagið.

    Tímasetningin álitsins er grunsamleg en niðurstaðan undarlegri. Það stenst ekki að ríki sem tekur á sig auknar fjárhagsbyrðar teljist þar með betri lántakandi. (meira…)

  • Fagnar ákvörðun forsetans – frétt á ruv.is

    Ákvörðun forsetans

    Frétt um ICESAVE og þjóðaratkvæðagreiðslu birt á vef ruv.is þann 20. febrúar 2011.

  • Synjun sífellt líklegri – frétt á ruv.is

    frett ruv.is

    Frétt varðandi ICESAVE birt á ruv.is þann 16. febrúar 2011.

    Frosti Sigurjónsson, talsmaður undirskriftasöfnunar gegn Icesave-samningnum, www.kjosum.is, telur að líkurnar á því að forsetinn hafni Icesave aukist sífellt. Hann telur að ekki sé mikið um falskar undirskriftir á vef hópsins. Magnús Árni Skúlason, talsmaður Indefence, segir að þingmenn hafi ekki staðið sig sem skyldi og hefði átt að vera kleyft að tryggja ríkari aðgang Íslendinga að eignum úr þrotabúi Landsbankans. (meira…)

  • Kjósum.is þar sem kosið var gegn Icesave.

    í Bítið

    Frosti í viðtali hjá Heimi og Kollu í Bítinu á Bylgunni þann 15. febrúar 2011.