Hefðbundnar ráðstefnur ganga jafnan þannig fyrir sig að fjöldinn allur mætir til að hlusta á fáeina sérfræðinga miðla af visku sinni um tilegin málefni. Það er gott, en einhver bandaríkjamaður fór samt að velta því fyrir sér allri þeirri þekkingu sem ráðstefnugestir hefðu að miðla hver öðrum.
óRáðstefna (e. unConference) gengur einmitt út á að stefna saman fólki til að ræða málin sín á milli, en hefðbundnum fyrirlestrum er gefið frí. Reyndar er einn stuttur fyrirlestur í byrjun þar sem leikreglur óRáðstefnu eru útskýrðar. (meira…)





Fyrir fáeinum dögum kom út skýrsla (Working Paper) frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum “The Chicago Plan Revisited” en hún fjallar um endurbætur á fjármálakerfinu sem Irving Fisher og fleiri lögðu fram í kjölfar kreppunnar miklu.
Íbúar Alaska fá árlega greiddan út arð úr auðlindasjóði ríkisins. Arðgreiðslan er breytileg frá ári til árs en hefur yfirleitt verið á bilinu 120 – 240 þúsund kr á hvern íbúa.