Frosti Sigurjónsson

  • Er Drómi að brjóta lög?

    Drómi er eignarhaldsfélag sem fer með eignasafn SPRON og Frjálsa. Í eignasafninu eru meðal annars lán sem SPRON og Frjálsi veittu viðskiptavinum sínum fyrir hrun. Þessir viðskiptavinir hafa ítrekað kvartað undan því að Drómi, sem er slitastjórnin, gangi lengra í sínum innheimtuaðgerðum en þær lánastofnanir sem eru í hefðbundnum rekstri.

    Reynist þetta rétt, þarf að kanna hvort slitastjórn Dróma hafi þar með brotið lög. Með tilkomu 3. gr. laga 78/2011 bættist grein 101 a. við lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki í slitameðferð. Í þeirri grein kemur efnislega fram að Fjármálaeftirlitið beri að hafa eftirlit með rekstri fyrirtækja eins og Dróma. Ennfremur stendur í 1. mgr.: “Eftirlitið nær meðal annars til viðskiptahátta þess sem felur meðal annars í sér að framganga þess gagnvart viðskiptavinum skal vera í samræmi við það sem almennt tíðkast hjá fjármálafyrirtækjum með gilt starfsleyfi.”…”Fjármálaeftirlitinu er heimilt að beina kröfu til héraðsdóms um að víkja skuli slitastjórn frá í heild eða að hluta í þeim tilvikum þegar viðkomandi slitastjórn telst ekki hafa unnið störf sín í samræmi við 1. og 2. mgr. þessarar greinar eða eftir atvikum samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Héraðsdómur skal taka málið til úrskurðar þegar í stað.”

    Svo virðist sem Drómi hafi reiknað niður gengistryggð lán tiltekins hóps viðskiptavina sinna með fyrirvara. Fyrirvarinn setur þennan hóp einstaklinga í verulega óvissu um fjárhagslega framtíð sína. Ekki er vitað til þess að önnur fjármálafyrirtæki hafi gert samsvarandi fyrirvara við endurútreikning gengislána í samræmi við lög 151/2010. Viðskiptavinir Dróma eru því að þessu leiti í allt annari og verri stöðu en viðskiptavinir annara fjármálastofnanna.

    Efnahags- og viðskiptanefnd hefur sent Fjármálaeftirlitinu bréf með spurningum varðandi þetta mál þar sem óskað er eftir svari eigi síðar en 3. júlí.

  • Ágreiningur um lausnir við skuldavanda heimilanna.

    Reykjavík síðdegis

    Reykjavík síðdegis ræðir við Frosta Sigurjónsson og Árna Pál Árnason um lausnir við skuldavanda heimilanna, smellið á myndina til að heyra viðtalið.

  • Afnám verðtryggingar og fleira er varðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar.

    Smellið á myndina til að heyra viðtalið.
    Smellið á myndina til að heyra viðtalið.

    Viðtal á Bylgjunni í Reykjavík síðdegis þann 24. júní 2013. Tilefni er skýrsla frá Seðlabanka Íslands er varðar tíu liða aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar.

     

  • Viðtal hjá Harmageddon þingstörf og fleira

    Smellið á myndina til að heyra viðtalið.
    Smellið á myndina til að heyra viðtalið.

    Frosti í viðtali hjá Harmageddon þann 7. júní 2013. Rætt er um þingstörf og fleira.

  • Viðtal á Bylgjunni um þingstörf, þingmannaskólann og fleira,

    Smellið á myndina til að heyra viðtalið.
    Smellið á myndina til að heyra viðtalið.

    Frosti í viðtali á Bylgjunni hjá Reykjavík síðdegis þann 5. júní 2013.  Rætt er um þingstörf, undirbúning, þingmannskólann og fleira.

  • Hætta á eignaverðsbólu innan hafta

    Screen Shot 2013-05-03 at 12.41.27 PMÍ nýrri skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika kemur fram að vegna haftanna og takmarkaðra fjárfestingakosta innanlands safnist sparnaður heimila og fyrirtækja upp hjá bönkunum, fjárfestingasjóðum og lífeyrissjóðum:

    „Þvinguðum sparnaði lífeyrissjóðakerfisins þarf að finna farveg þótt spurn eftir fjármagni sé takmörkuð. … Við þessar aðstæður skapast veruleg hætta á eignaverðhækkunum umfram það sem skýrist af væntri arðsemi. Slíkar innistæðulausar hækkanir ganga til baka fyrr eða síðar.“ (meira…)

  • Sögulegur sigur Framsóknar

    Kosningar 2013Framsókn hlaut 24.4% atkvæða og nítján þingsæti, jafnmörg sæti og Sjálfstæðisflokkurinn sem fékk 26,7% atkvæða. Í kosningunum árið 2009 fékk Framsókn aðeins 14,8% og níu þingsæti.

    Leita þarf aftur til ársins 1979 til að finna svo góða útkomu Framsóknar á landsvísu, en í Reykjavík bætti flokkurinn verulega við sig og hefur ekki áður hlotið jafn mikið fylgi: 16,4% og tvö sæti í norður og 16,8% og tvö sæti í suður.

     

  • Málefnið – Ísland og umheimurinn á RUV

    Kappræður RUV

    Kappræður á RUV fyrir alþingiskosningarnar, málefnið er Ísland og umheimurinn 23. apríl 2013. Smellið á myndina til að sjá þáttinn.

  • Kappræður á stöð 2

    Kappræður á stöð 2

    Kappræður frambjóðenda í Reykjavíkurkjördæmi norður 23. apríl 2013.Smellið á myndina til að sjá þáttinn.

  • Frosti svarar Össuri á Bylgjunni

    Reykjavík síðdegis Frosti svarar Össuri

    Frosti svarar misskilningi Össurar sem fram kom á bloggi hans varðandi skuldaleiðréttingar í  þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 23. apríl 2013.  Smellið á myndina til að heyra viðtalið.