peningamál

  • Vill halda í krónuna en bylta stefnunni í peningamálum

    Frétt á visir.is undir viðskipti 17. maí 2012.

    • Frosti Sigurjónsson segir að bankarnir geti í raun búið til nýjar krónur inn í kerfið með því að lána peninga.
    • Frosti Sigurjónsson

    Frosti Sigurjónsson, rekstarhagfræðingur, segir að það þjóni hagsmunum Íslands best að vera áfram með krónuna, en gjörbylta hagstjórn með því að takmarka vald bankanna til útlána á svokölluðum rafkrónum. Peningvaldið hafi í raun verið fært frá ríkinu til bankanna og þessu þurfi að snúa við.

    Frosti lýsti þessum viðhorfum í Klinkinu nýlega. Hann vill að hér verði innleidd önnur stefna í peningamálum byggð á kenningum bandaríska hagfræðingsins Irving Fisher, (meira…)

  • Fjölmyntakerfi flókin og dýr

    MyntirFjölmyntakerfi hefur verið nefnt sem einn af valkostunum í gjaldmiðilsmálum Íslands. Slíkt fyrirkomulag myndi fela í sér að fólk og fyrirtæki gæti einfaldlega notað þá mynt sem best hentar á hverjum tíma. Hugmyndin hljómar spennandi enda geta varla nokkur maður verið á móti frelsi til að velja.

    Bent hefur verið á að einhliða upptaka eins erlends gjaldmiðils hefur í för með sér verulegan kostnað og mikla áhættu. Kostnaðurinn felst í því að kaupa til landsins nægilegt magn af seðlum (lágmark 40 milljarða). Áhættan felst einkum í því að núna eru 1000 milljarðar af lausu fé sem vilja fara úr landi og þá myndu 40 milljarðarnir duga skammt. (meira…)

  • Millifærslur í Kanadadölum

    cadKanadadollar er sameiginlegur gjaldmiðill 35 milljón Kanadabúa. Kanada samanstendur af tíu fylkjum og þremur sjálfstjórnarsvæðum.

    Alberta er tekjuhæsta fylkið enda er það með mjög öflugan iðnað og er næst stærsti útflytjandi á jarðgasi í heiminum. Þjóðartekjur á mann í Alberta eru 71 þúsund CAD. Íbúar fylkisins Prince Edward Island stunda hinsvegar landbúnað og útgerð. Þar eru tekjur á íbúa helmingi lægri en í Alberta, aðeins 35 þúsund CAD.

    Hvernig geta svo ólík svæði búið við sama gjaldmiðil? (meira…)

  • Frosti ræddi um ESB og peningamál í Silfri Egils.

    Silfur Egils mars 2012.

    Frosti var gestur í Silfri Egils og ræddi um ESB, peningamál og fleira 11. mars 2012.