Hitamál – Rafbók (pdf)

3.500 kr.

Hitamál – Kolefnishlutleysið tekið til skoðunar. Getur Ísland sparað tugi milljarða árlega án þess að valda hlýnun? Rafbók, 160 bls., PDF skrá, stærð 54 Mb. Merkt kaupanda. Fyrir iPad, Samsung Galaxy Tab og tölvur með Adobe Acrobat. Það er hægt að hala bókinni niður strax eftir greiðslu og einnig með hlekk sem berst í tölvupósti. Athugið að niðurhalið getur tekið allt að eina mínútu.

Category:
Tags:

Lýsing

Loftslagsmálin hafa á örfáum árum orðið eitt stærsta viðfangsefni samfélagsins. Stefnan á kolefnishlutleysi kallar á sífellt umfangsmeiri og kostnaðarsamari aðgerðir í trausti þess að vísindin séu hafin yfir vafa.

Það er staðreynd að jörðin hefur hlýnað og að koltvísýringur hefur aukist. En vísindamenn eru ekki sammála um hversu stór hluti hlýnunarinnar skýrist af náttúrulegum sveiflum, losun manna eða samspili beggja. Loftslag jarðar er flókið kerfi þar sem margir þættir verka saman þar á meðal skýjahula, hafstraumar, mengun og sólvirkni. Koltvísýringur skiptir máli, en er aðeins einn þáttur af mörgum.

Hitamál fjallar um þetta og sögu loftslagsbreytinga, óvissu í mælingum, spár sem hafa brugðist, vafasöm úrræði til að draga úr losun og aukaverkanir íþyngjandi regluverks. Bókin byggir á fjölda rannsókna og heimilda og dregur fram gögn sem vekja spurningar.

Hitamál er bók fyrir þá sem vilja íhuga hvort núverandi stefna í loftslagsmálum sé raunhæf eða hvort kominn sé tími til að huga að öðrum leiðum.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Hitamál – Rafbók (pdf)”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *