Umsögn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar 12. 12 2012:
Peningavaldið – Umsögn um frumvarp til stjórnarskipunarlaga um stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Þingskjal 510 – Mál nr. 415.
Með peningavaldi er átt við valdið til að búa til peninga, eða ígildi peninga, og setja í umferð.
Ógætileg meðferð peningavaldsins er vafalítið ein af höfuðástæðum hrunsins og má færa rök fyrir því að ný stjórnarskrá fjalli um peningavaldið og hvernig skuli koma í veg fyrir að því verði misbeitt. (meira…)

Fyrir fáeinum dögum kom út skýrsla (Working Paper) frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum “The Chicago Plan Revisited” en hún fjallar um endurbætur á fjármálakerfinu sem Irving Fisher og fleiri lögðu fram í kjölfar kreppunnar miklu.