Í þættinum vikulokin á Rás 1 þann 7. desember í umsjón Hallgríms Thorsteinssonar. Smellið á myndina til að hlusta á þáttinn.
Skuldamál
-
Fjármálaeftirlitið telur Dróma brjóta lög
Eins og fram kom í pistli í lok júní á þessu ári, þá sendi Efnahags- og viðskiptanefnd skriflega fyrirspurn til Fjármálaeftirlits um viðskiptahætti Dróma og hvort þeir væru í samræmi við lög.Í svari Fjármálaeftirlitsins til nefndarinn kom meðal annars fram að Fjármálaeftirlitið hefði mál Dróma til athugunar. Þann 29. október birti svo Fjármálaeftirlit gagnsæistilkynningu á heimasíðu sinni þar sem greint er frá athugun á starfsháttum Dróma hf. Þar kemur fram að eftirlitið telur Dróma ekki fara að lögum og að Drómi hyggist kæra þá niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins.
-
Skuldalækkun heimila með lækkun neysluvísitölu.
Viðtal á X-inu hjá Harmageddon varðandi skuldalækkun heimila um 1-2% með lækkun neysluvístölu í gegnum neysluverð í verslunum tengt kreditkortaviðskiptum og staðgreiðslu. Smellið á myndina til að heyra viðtalið.
-
Lækkun skulda heimilanna um 1-2%
Viðtal hjá Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 22. ágúst 2013 um möguleika á að lækka skuldir heimila um 1-2%. Smellið á myndina til að heyra viðtalið.
-
Skuldir heimila geta lækkað um 1-2% með því að tilgreina álag vegna greiðslukorta
Verðtryggðar skuldir heimilanna voru ríflega1.400 milljarðar í mars á þessu ári. Miðað við það myndi lækkun neysluvísitölu, þótt ekki væri nema um eitt prósent lækka skuldir heimila um heila 14 milljarða. Það er einmitt hugsanlegt að hægt sé að ná fram slíkri lækkun einfaldlega með því að kaupmenn breyti venjum sínum og hætti að innifela álag vegna kortaviðskipta í almennu söluverði. -
Framsóknarleiðin rædd í Harmageddon
Frosti ræðir við þá Loga og Frosta í Harmageddon á útvarpsstöðinn X97,7 23. apríl 2013. Smellið á myndina til að heyra viðtalið.





