Loftslagsmál

  • Hitamál rædd í Dagmálum Morgunblaðsins

    Eggert Skúlason bauð mér til sín í Dagmál til að ræða bókina Hitamál. Viðtalið í heild sinni er aðgengilegt áskrifendum (hlekkur á viðtalið) og hér er hlekkur á umfjöllun á mbl.is þar sem horfa má á bút úr viðtalinu.

    Margt var rætt og ég sagði meðal annars:

    „Við erum í bandalagi með þjóðum sem eru bara ábyrgar fyrir fimmtán prósent af losun mannkynsins, sem hefur ákveðið að setja sér mjög harðar reglur og refsa sér ef þau ná þeim ekki. Allar hinar þjóðirnar sem eru í þessum Parísarsáttmála koma bara með yfirlýsingar. Viljayfirlýsingar um það sem þau myndu vilja gera. Skila skýrslum og ef þau geta það ekki þá segja þau bara sorrý. Gengur betur næst. Engin sekt.“

    „Þessi vísindi eru ekki nægilega vel unnin til að ætla að banna fólki að keyra bensínbíl eða að ætla að láta Icelandair borga tuttugu milljarða í loftslagsgjöld.“

    „Þetta er á leiðinni út í skurð. Við verðum að átta okkur á því að við ráðum ekkert við þetta, ef þetta heldur óbreytt áfram. Við verðum að gera eitthvað. Við verðum að segja stopp.“

  • Hitamál fá hlýjar viðtökur

    Bókin Hitamál kom loksins úr prentun 4. desember og síðan hefur hún rokið út. Fyrsta prentun kláraðist á nokkrum dögum en fólkið hjá Litlaprent brást skjótt við og prentaði meira.

    Bókin fæst keypt hér á vefnum sem kilja, rafbók og hljóðbók og fyrir stuttu kom hún í bókaverslanir Pennin Eymundsson á höfuðborgarsvæðinu.

    Margir hafa haft samband til að hrósa bókinni og færa þakkir fyrir að koma þeim sjónarmiðum á framfæri sem í henni eru. Morgunblaðið minntist á bókina á forsíðu þann 8. desember sl. en í því blaði var viðtal við mig um efnið. Þann 10. var rætt um bókina í ritstjórnargrein:

    Screenshot
  • Frostarnir spjalla um hlýnun

    Var gestur Frosta Logasonar í Spjallinu á Brotkasti 30. október 2025. Við ræddum um loftslagsmálin, stefnu stjórnvalda í þeim málum og hvað mætti betur fara. Margt af því er hægt að lesa nánar um í bókinni Hitamál.
    Nú er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni á Youtube, eða á Spotify, með því að nota spilarann hér fyrir neðan.

  • Hitamál rædd á útvarpi Sögu

    Var gestur Síðdegisútvarpsins á Útvarpi Sögu þar sem við Pétur Gunnlaugsson ræddum um bókina Hitamál, stefnu Íslands í loftslagsmálum, afleiðingar hennar og margt fleira þessu tengt.

    Það er hægt að hlusta á þáttinn hér fyrir neðan.