Skilmálar

Þessi vefverslun er rekin af Frosta Sigurjónssyni, kt. 191262-2479, heimilisfang Haðalandi 21, 108 Reykjavík, netfang: frosti@frostis.is. Með því að versla á síðunni samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

Verð og greiðslur

Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.
Greiðslur fara fram í gegnum PayPal.

PayPal og ISK:
PayPal tekur við greiðslum í ISK, en inneign breytist sjálfkrafa í EUR eða USD samkvæmt gengi PayPal. Gjaldeyrisþóknun getur bæst við.

Prentaðar bækur – afhending og sending

Prentaðar bækur, sem eru á lager, eru póstlagðar næsta virka dag.
Afhending bóka í forsölu er samkvæmt áætlaðri dagsetningu sem fram kom við pöntun.
Greiðsla fer fram við pöntun.

Rafbækur (PDF / eBook)

Rafbækur eru afhentar í gegnum niðurhalstengil sem birtist í pöntunarkvittun og er sendur í tölvupósti.
Tengillinn er persónubundinn og má ekki deila eða dreifa honum eða rafbókinni til annara.

Skilareglur og endurgreiðslur

Prentaðar bækur:
Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku til að hætta við kaupin. Bókin þarf að vera óskemmd og í upprunalegu ástandi.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil.
Ef bók ber merki um notkun (t.d. beyglur, fingraför, brotinn kambur) er heimilt að lækka endurgreiðslu eða hafna henni.

Rafbækur:
Vegna eðlis rafrænna skráa er enginn skilaréttur eftir að niðurhal hefur hafist, í samræmi við neytendalög.

Trúnaður og persónuvernd

Við vinnum með persónuupplýsingar samkvæmt gildandi lögum.
Upplýsingar eru aðeins notaðar til að afgreiða pöntun og eru ekki afhentar þriðja aðila nema lög krefjist þess.

Höfundarréttur

Allt efni á síðunni, þar með talið texti, myndir og rafrænar bækur, er varin höfundarrétti. Óheimilt er að afrita, dreifa eða nota efni án leyfis.

Kvartanir og samskipti

Ef eitthvað kemur upp við pöntun eða afhendingu, vinsamlegast hafðu samband við frosti@frostis.is

Breytingar á skilmálum

Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra skilmála hvenær sem er. Breytingar taka gildi við birtingu á síðunni.