Hljóðbókin Hitamál opnast venjulega sjálfkrafa í Books forritinu á Apple tölvum en því miður gerist það ekki í iPhone / iPad. Fyrir þau tæki þarf að sækja app fyrir hljóðbækur í Appstore.
Við mælum með BookPlayer appinu sem fær góða dóma. Smelltu á myndina af því til að finna það i Appstore.

Hvernig á að sækja hljóðbókina inn í appið:
- Þegar þú ert hefur sótt BookPlayer appið setur þú það í gang.
- Þá opnast skjámynd (Settings), þá skal velja (Library).
- Í (Library) skjámyndinni er blár takki með þrem punktum. Smelltu á hann.
- Þá opnast valmynd. Efsti valkostur er Import files. Veldu þá aðgerð.
- Þá opnast listi yfir skrár sem nýlega hafa komið inn á þinn iPhone eða iPad.
Veldu skrána sem heitir: HitamalAudioBookv2.m4b.zip og ýttu svo á (Open) takkan.- Ef skráin HitamalAudioBookv2.m4b.zip er ekki í listanum, getur þú hlaðið henni niður í síman/spjaldtölvuna. Opnaðu staðfestingarpóstin sem sendur var til þín þegar þú keyptir hljóðbókina þar er hlekkur fyrir niðurhal. Smelltu á hann.
Niðurhalið tekur allt að 2 mínútur. Að því loknu ætti skráin að vera komin á listann.
- Ef skráin HitamalAudioBookv2.m4b.zip er ekki í listanum, getur þú hlaðið henni niður í síman/spjaldtölvuna. Opnaðu staðfestingarpóstin sem sendur var til þín þegar þú keyptir hljóðbókina þar er hlekkur fyrir niðurhal. Smelltu á hann.
- Þá opnast skjár sem segir Import. Smelltu á hakið (V) efst í hægra horninu.
- Þá opnast valmöguleikar, smelltu á (Library).
Nú er hljóðbókin komin í BookPlayer hjá þér og þú getur byrjað að hlusta með því að smella á nafnið á hljóðbókinni.
Þegar spilun er hafin getur þú stýrt hraðanum með því að smella á takkann (1x) og ýta á (+). Oft er gott að spila á 1.1x eða 1.2x því bókin er lesin á hægum hraða.
Þegar þú tekur þér hlé frá hlustun man BookPlayer hvert þú varst kominn. Næst þegar þú vilt hlusta heldur spilun áfram frá þeim stað .
Vonandi gengur þetta allt vel en ef spurningar vakna má senda póst á: bokabudfs@frostis.is
