Lífeyrissjóðir – Frosti Sigurjónsson

Lífeyrissjóðir, smá- og meðalstór fyrirtæki
Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar hefur skilað jákvæðu áliti um lagafrumvarp sem gerir lífeyrissjóðum heimilt að fjárfesta á markaðstorgi fjármálagerninga (MTF) en hér á landi er slíkt markaðstorg rekið undir merkinu First North.

Nefndin gerði þá breytingu á frumvarpinu að heimildin takmarkaðist við 5% af hreinni eign lífeyrissjóðs. Lífeyrissjóðir hafa til þessa haft heimild til að fjárfesta 20% af hreinni eign í verðbréfum óskráðra fyrirtækja en hún breytist ekki við þetta.

Niðurstaða álits meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar er þessi:

„Það er mat meiri hlutans að auknar fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða á markaðstorgi fjármálagerninga verði til þess að auka fjölbreytni fjárfestingarkosta sem lífeyrissjóðum standi til boða á innlendum markaði. Þannig verði mögulegt að auka áhættudreifingu í eignasöfnum lífeyrissjóða.

Meiri hlutinn telur frumvarpið auðvelda lífeyrissjóðum að fjárfesta í smáum og meðalstórum fyrirtækjum sem lúta skarpari laga- og regluumgjörð. Það geti bæði bætt ávöxtun lífeyrissjóða og aukið hagvöxt. Þá bendir meiri hlutinn á að endanleg ábyrgð á fjárfestingum lífeyrissjóða liggur fyrst og fremst hjá stjórnum þeirra.

Skort hefur hvata fyrir smá og meðalstór fyrirtæki til að undirgangast kröfur MTF um gagnsæi og upplýsingagjöf en frumvarpið miðar að því að auka þann hvata.“

Rétt er að halda því til haga að einn þingmaður var mótfallinn því að lífeyrissjóðir fengju þessa heimild og hann skilaði séráliti í málinu. Það spunnust því nokkuð líflegar umræður um málið. Sjá má upptöku hér.

Ætti að selja Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins til lífeyrissjóða?
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er í eigu ríkisins. Hlutverk hans er að stuðla að uppbyggingu og vexti íslensks atvinnulífs með því að taka þátt í fjárfestingum í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Sjóðurinn hefur frá stofnun komið að fjármögnun fjölmargra efnilegra fyrirtækja og þannig verið í lykilhlutverki í eflingu nýsköpunar á Íslandi. Nú eru 34 fyrirtæki og 3 sjóðir í eignasafni sjóðsins.

Nýsköpunarsjóður hefur ekki mikið fé aflögu til nýfjárfestinga um þessar mundir og ólíklegt má telja að ríkissjóður geti lagt honum til digra sjóði á næstu árum. Þetta þýðir að færri nýsköpunarverkefni munu fá fjármagn til uppbyggingar.

Á sama tíma og ríkissjóður berst í bökkum vegna skulda, glíma lífeyrissjóðir við vanda sem er allt annars eðlis. Þeir þurfa að fjárfesta fyrir 130 milljarða árlega innan hafta. Talað er um hættu á bólumyndun á eignamarkaði í því sambandi. Lífeyrissjóðir hafa ekki fjárfest að ráði í nýsköpun, megnið fer í skráð verðbréf og skuldabréf ríkissjóðs.

Með kaupum á Nýsköpunarssjóð atvinnulífsins myndu lífeyrissjóðir eignast fjölbreytt safn af nýsköpunarfyrirtækjum sem gæti gefið þeim verulegan arð í framtíðinni. Með kaupum á Nýsköpunarssjóði atvinnulífsins væru lífeyrissjóðir jafnframt komnir með starfandi sjóð í hendurnar. Sjóðurinn væri kjörinn farvegur fyrir aukna þátttöku lífeyrissjóða í nýsköpun sem myndi án efa skila sér í auknum vexti íslensks atvinnulífs, fleiri störfum og þar með bættum lífskjörum í landinu.

Skyldu lífeyrirsjóðir hafa einhvern áhuga á að skoða þessa hugmynd?

Blásið í næstu bólu?
Birtist á mbl.is 18. janúar 2013

Lífeyrissjóðirnir munu þurfa að fjárfesta fyrir 128 milljarða á árinu 2013. Sú spurning vaknar hvort þeir geti í raun og veru komið svo miklu fé í ávöxtun án þess að kynda undir verðbólu í skráðum verðbréfum.

Er verið að skapa fleiri störf?

Lífeyrissjóðir mega lögum samkvæmt aðeins hafa 10% af eignasafni sínu í óskráðum verðbréfum. Það þýðir á mannamáli að aðeins 12 af þessum 128 milljörðum sem dregnir voru af launum landsmanna verða fjárfestir í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. En það eru einmitt lítil og meðalstór fyrirtæki sem skapa flest ný störf í hagkerfinu. Það eru smá og meðalstór fyrirtæki sem greiða megnið af laununum sem iðgjöldin voru dregin af. Er eitthvað vit í því að taka peninga af þeim og láta sparisjóði setja þá í verðbréf stórfyrirtækja sem síðan ofrísa og falla á markaði?

Er næsta bóla byrjuð?

Það getur hljómað traustvekjandi að lífeyrissjóðir fjárfesti aðeins í fyrirtækjum sem hafa bolmagn til að skrá skuldabréf eða hlutabréf í kauphöll. Vandinn hérlendis er sá að það eru allt of fá fyrirtæki í kauphöllinni. Eftirspurn eftir bréfum skráðra fyrirtækja er því miklu meira en framboð og því ætti ekki að koma á óvart þótt verðið fari hratt hækkandi. Allt bendir til þess að við séum byrjuð að blása í næstu bólu.

Þetta þarf ekki að vera svona

Það er auðvitað mikilvægt markmið að hver kynslóð leggi í lífeyrissjóð fyrir sjálfa sig. Það er bara vandséð að sú kynslóð sem nú glímir við afleiðingar efnahagshruns og stökkbreytt íbúðalán hafi nokkurt bolmagn eða aðstöðu til að leggja í lífeyrissjóð hvað þá ávaxta hann með traustum hætti innan fjármagnshafta.

Hvernig væri nú að lækka iðgjöldin tímabundið um c.a. helming, þar til höftin hafa verið losuð og efnahagslífið hefur komist á lappirnar?