Krónan – Frosti Sigurjónsson

Stjórnvöld taki sér tak
Á ráðstefnu hjá Arion banka um framtíð krónunnar voru flestir frummælendur á því að slæm króna væri afleiðing af slæmri stjórn efnahags- og peningamála. Fjórir þingmenn, þar af tveir ráðherrar sem báðir heita Katrín voru í pallborði og hvöttu þjóðina og sjálfa sig til að taka sér tak í óráðssíuni. Það væri eina vitið.

Það lofaði sannarlega góðu að ráðherrar ætluðu að taka sér tak. En svo komu kvöldfréttirnar. Katrín fjármálaráðherra hafði sama dag kynnt fjárfestingaráætlun fyrir árin 2013-2015. Þar á blaði er meðal annars fasteignaliður upp á 13,5 milljarða. Í honum eru ýmsar nýbyggingar sem ég dreg mjög í efa að séu forgangsmál fyrir þjóð, sem hvorki hefur hefur efni á að manna heilbrigðisstofnanir sínar né tækjavæða þær sem skyldi.

Þarf okkar fámenna land að byggja hátæknifangelsi fyrir 2 milljarða núna?

Er forgangsmál í dag að byggja hús fyrir íslensk fræði upp á 2,4 milljarða?

Er þetta rétti tíminn til að setja 1,3 milljarð í menntavísindahús?

Samtals kosta þessar nýbyggingar 5,7 milljarða og engin leið að sýna fram á að þær skili hagnaði. Stærsti hlutinn af þessum milljörðum mun alveg óhjákvæmilega renna úr landi í formi gjaldeyris til kaupa á byggingarefni.

Gjaldeyri ættu stjórnvöld aðeins að nota til fjárfestinga sem geta skapað þjóðinni auknar gjaldeyristekjur, eða sparað gjaldeyrisútlát.

Geymum allan lúxus og loftkastala þar til við höfum efni á honum. Ef stjórnvöld láta eftir sér óþarfa af þessu tagi mun það óhjákvæmilega koma niður á brýnustu nauðsynjum.

Stjórnvöld þurfa að taka sér tak í óráðssíunni.

Ráðherra grefur undan gjaldmiðlinum
Katrín Júlíusdóttir tók við lyklunum að Fjármálaráðuneytinu í dag. Hún lét það verða sitt fyrsta verk að grafa undan trausti á gjaldmiðli þjóðarinnar í viðtali við Bloomberg fréttastofuna.

Bloomberg birti í dag frétt um ráðherraskiptin undir fyrirsögninni „Iceland sees end of krona days as joining euro only option“. Í fréttinni er víða vitnað orðrétt í fjármálaráðherrann. Afstöðu hennar má túlka þannig að krónan sé slæmur gjaldmiðill og lítil von um úrbætur, evran sé eina lausnin en hún standi ekki til boða í bráð.

Skynsamir erlendir fjárfestar sem lesa þannig frétt hljóta að forðast landið, ef þeir taka mark á orðum ráðherrans.

Allt bölsýnistal ráðherra um krónuna er til þess fallið að veikja gengið, eða draga úr styrkingu hennar. Veikari króna er tjón fyrir þjóðina sem þarf þá að leggja harðar af sér til að eiga fyrir erlendum varningi og skuldum.

Að lokum má benda á að afnám gjaldeyrishafta verður þeim mun erfiðara eftir því sem eigendur króna eru svartsýnni á þróun gjaldmiðilsins.

Það er erfitt að ímynda sér hvaða hagsmuna ráðherrann telur sig gæta með því að mála svo dökka mynd af framtíð krónunnar. Þetta er býsna alvarlegt mál og skylda Alþingis að krefja ráðherrann skýringa.

Það er mikið óþarfaverk að grafa undan trausti á krónunni, en það þýðir samt ekki að það sé æskilegt að „tala gjaldmiðilinn upp“ með óraunhæfu bjartsýnistali. Ráðherrann þarf að finna milliveg og forðast að baka þjóðinni tjón.

Hér eru nokkur ummæli ráðherrans úr frétt Bloomberg:

“There’s a risk that while Iceland continues to use the krona we’ll always have capital controls,”

“I’m not saying that it’s impossible to abolish the controls and re-float the krona by using other supportive measures. However, in my opinion, the smart thing to do is continue working toward European Union membership and euro adoption.”

“For a country that wants to have strong commercial links to the international community, it’s hard to utilize the krona as the country’s currency,”

“That’s a fact. Our currency is extremely volatile and sensitive toward external factors.”

Frétt Bloomberg í heild

Vill halda í krónuna en bylta stefnunni í peningamálum
Frétt á visir.is undir viðskipti 17. maí 2012.

Frosti Sigurjónsson segir að bankarnir geti í raun búið til nýjar krónur inn í kerfið með því að lána peninga.

Frosti Sigurjónsson

Þorbjörn Þórðarson skrifar:

Frosti Sigurjónsson, rekstarhagfræðingur, segir að það þjóni hagsmunum Íslands best að vera áfram með krónuna, en gjörbylta hagstjórn með því að takmarka vald bankanna til útlána á svokölluðum rafkrónum. Peningvaldið hafi í raun verið fært frá ríkinu til bankanna og þessu þurfi að snúa við.

Frosti lýsti þessum viðhorfum í Klinkinu nýlega. Hann vill að hér verði innleidd önnur stefna í peningamálum byggð á kenningum bandaríska hagfræðingsins Irving Fisher, en tillögur hans ganga út á að bundinn verði endir á hið svokallaða brotaforðakerfi þar sem bankar geta lánað út lausar innistæður og að í staðinn verði tekið upp kerfi þar sem bankar geta eingöngu tekið við sparnaði og lánað hann út. „Þegar maður fer að útskýra þetta fyrir fólki þá spyr fólk, er það ekki þannig sem bankar vinna? Þeir safna innlánum og lána út? En þetta er í rauninni ekki þannig. Þeir þurfa ekki að safna innlánum til að lána út peninga og búa til peninga,“ segir Frosti.

Hann segir að mikil auðlind sé fólgin í því að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil, en hins vegar þurfi að stýra honum rétt.

„Peningamagnsstjórnunin hefur verið rót óstöðugleika. Og það er hægt að koma í veg fyrir hann. Það er dálítið sérstakt að í stjórnarskránni er ekkert sagt um hvernig peningavaldið skuli temprað. (…) Það er ekki orð um það í íslensku stjórnarskránni,“ segir Frosti en hann segar afar mikilvægt að ákvæði sé í stjórnarskránni um hvernig fara skuli með þetta mikla vald.

Frosti segir að bankarnir geti í raun búið til nýjar krónur inn í kerfið með því að lána peninga. Seðlabankinn geti síðan fylgt á eftir með veikburða stýritækjum. Sjá má viðtal við Frosta hér.