Icesave – Frosti Sigurjónsson

Eftir Icesave er komið að heimilunum
Frosti ræddi við Morgunblaðið í fögnuði á Hótel Marina við Reykjavíkurhöfn í gærkvöldi. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is

„Nei. Þetta mál er ekki dautt,“ segir Frosti Sigurjónsson, frambjóðandi Framsóknarflokksins í komandi alþingiskosingum og einn stofnenda Advice-hópsins, um baráttu fyrir aðgerðum í þágu skuldugra heimila. Eftir sigurinn í Icesave sé komið að heimilunum.

Frosti segir ríkisstjórnina hafa unnið gegn Advice-hópnum og notið til þess liðsinnis fjársterkra aðila sem vildu fallast á Icesave-samninginn sem var felldur í síðari þjóðaratkvæðagreiðslunni, 6. mars 2011.

Hann var sigurreifur í fögnuði á Slippbarnum í gærkvöldi.

„Hér ríkir gleði og ánægja yfir þessu. Nú á þjóðin að gera sér glaðan dag, finnst mér. Mér reiknast til að þetta hafi sparað hverju heimili 800.000 krónur með því að síðasti samningur var felldur. Þetta eru um 80 milljarðar sem hann hefði kostað með tíð og tíma. Áfallin krafa var 46 milljarðar og svo áttu eftir að falla meiri vextir.

Það var búið að meta að þetta yrðu um 80 milljarðar í erlendum gjaldmiðli sem má deila með 100.000 heimilum, og þá koma út 800.000 krónur á heimili. Allir ættu að kætast yfir því. Vonandi verður þetta byrjun á einhverju góðu. Það kemur í ljós að Ísland er í rétti og hefur ekki brotið neina alþjóðlega samninga. Þetta er á forsíðum heimsblaðanna og það skiptir mjög miklu máli.“

Ákváðu að hefja undirskriftasöfnun

– Segðu mér aðeins frá stofnun Advice. Hvert var tilefnið?

„Upphafið má rekja til þess að við reyndum að fá Indefence-teymið í gang eftir að það hafði unnið gríðarlega mikilvæga baráttu í Icesave II. Mér gekk illa að fá þá af stað. Þeir sögðu „Byrja þú bara” og við sjáum til. Þeir voru eðlilega þá þegar búnir að gera svo mikið í málinu. Þeir fóru ekki af stað og þá ákváðum við að hefja undirskriftasöfnunina á öðrum vettvangi og þar var Samstaða þjóðar í forgöngu í gegnum vefinn kjósum.is.

Síðan þegar kom að því að kynna rökin að þá var Advice stofnað til að halda utan um allan þann pakka og safna peningum til þess að geta auglýst sjónarmiðin. Það er það sem Advice-hópurinn gerði og mætti reglulega og vann mjög mikið í þessu. Þegar Advice-hópurinn var kominn í gang lögðust allir á árar með okkur. Það er mikilvægt að taka það fram og stór hluti af Indefence-hópnum líka.“

– Hvað voru margir í hópnum?

„Hópurinn átti sér opinbera talsmenn en að baki voru miklu fleiri talsmenn.“

Þjóðin getur skorið úr um flókin álitamál

– Því er haldið fram að þetta sé sigur beins lýðræðis og marki því tímamót í lýðræðissögunni. Ertu sammála?

„Já, mér finnst það renna stoðum undir það að jafnvel í mjög flóknum álitamálum sé þjóðinni treystandi til að taka skynsamlega ákvörðun og geti verið góður varnagli gagnvart þinginu. Það er alls ekki hægt að gefa sér að þingið viti betur en kjósandinn. Það er margt annað sem ég lærði af því að taka þátt í baráttunni, að koma á framfæri sjónarmiðum þeirra sem vildu hafna samningnum. Þá á ég við að þar var ríkisvaldinu kannski beitt fullharkalega á móti grasrótinni. Það þarf að jafna þann leik.“

Við vorum með ríkisstjórnina á móti okkur, töluverðan hluta af fjölmiðlunum og hóp sem vildi að samningarnir yrðu samþykktir og hafði greinilega næga peninga milli handanna. Þannig að þegar ríkisstjórnin sendi bækling um kosningarnar inn á hvert heimili hefðu rök með og á móti hreyfingunum átt að fylgja með, að mínu mati. Við þurftum að smíða tölvukerfi frá grunni til að safna undirskriftum. Við þurftum að byrja á núlli. Það er ekki gott, að lýðræðið gangi út á þetta. Það þarf að búa til farveg þannig að þetta verði auðveldara í framkvæmd.“

Var réttlætismál fyrir þjóðina

– Nú hefurðu beitt þér í skuldamálunum. Þið hafið nú ekki aðeins fundið blóðbragðið heldur hafið þið unnið sigur, fullnaðarsigur. Telurðu að sigur geti líka unnist í þessum stóra málaflokki?

„Já, það var mikið réttlætismál að þjóðin þyrfti ekki að bera skuldir einkabanka, en hún ber ennþá tjónið af efnahagshruninu á óréttlátan hátt. Það á eftir að leiðrétta stökkbreyttar skuldir heimilanna.“

– Nú líður mörgum eins og að þetta mál sé dautt?

„Nei. Þetta mál er ekki dautt. Það er búið að telja fólki trú um að það hafi ekki verið hægt að gera neitt en það er ekki rétt. Það eru margar leiðir til þess. Þær eru ekki endilega sársaukalausar. En það er ekki hægt að gefa réttlætinu frí bara af því að það er erfitt. Það verður samt að láta réttlætið hafa forgang.“

Stjórnvöld hafa gert alltof lítið fyrir skuldara

– Hvernig finnst þér ríkisstjórnin hafa staðið sig í skuldamálum heimilanna?

„Ég held að ríkisstjórnin hafi gert alltof lítið. 110%-leiðin leiddi aðeins til niðurfærslu skulda sem fólk gat ekki greitt hvort sem var. Síðan hafa dómstólarnir greitt úr þeim lánum sem voru ólögleg en ríkisstjórnin hefur ekki gert neitt umfram þetta. Það dugar ekki. Til þess að heimilin verði ekki bara í kælikerfi einhverja næstu áratugina þarf að leiðrétta þetta. Það er bæði réttlátt og þjóðhagslega hagkvæmt.“

Viðtal í Kastljósi vegna Icesave dóms
Viðtal í Kastljósi þann 29. janúar 2013.

Rætt við Frosta sem talsmann ADVICE hópsins gegn ICESAVE samningnum í Kastljósi þann 29. janúar 2013.

Sigur Íslands í Icesave málinu
Í dag hafnaði EFTA dómstóllinn öllum ákærum ESA á hendur Íslandi í Icesave málinu. Auk þess var ESA og ESB, sem gerðist meðákærandi, dæmd til að greiða málskostnað Íslands af málinu. Sigur Íslands í þessu mikilvæga dómsmáli tíma hefði vart getað verið sætari.

Á þessu augnabliki er efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem lögðu ómældan tíma og vinnu í baráttu gegn óréttlátum Icesave samningum.

Ég vil þakka öllum sem tóku þátt í að gera sigurinn mögulegan, ekki síst þingmönnum sem færðu rök gegn Icesave samningunum, InDefence sem börðust gegn Icesave I og II, kjosum.is sem söfnuðu áskorunum, Forsetanum sem vísaði ákvörðuninni til þjóðaratkvæðis, og líka þakka öllum þeim sem tóku þátt og styrktu Advice hópinn í baráttunni gegn Icesave III, og svo kjósendum fyrir að fella samningana í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl 2011.

Hvað er ADVICE?
Frosti í viðtali hjá INN þann 26. mars 2011.

Umræðuþáttur á ÍNN þar sem Hallur Hallsson frá Samstöðu þjóðar gegn Icesave ræðir við Frosta Sigurjónsson og Jón Helga Egilsson frá ADVICE.IS

Átta lögmönnum svarað
Frosti Sigurjónsson skrifar um Icesave fyrir hönd ADVICE-hópsins á visir.is þann 23. mars 2011.

Átta hæstaréttarlögmenn skrifa undir grein sem birt var í Fréttablaðinu 17. mars undir fyrirsögninni „Dýrkeyptur glannaskapur“. Greinarhöfundar segjast ætla að segja já við Icesave en færa fyrir því ýmis rök sem ekki virðast standast nánari skoðun:

„Með þeim samningum sem þverpólitísk samninganefnd náði og aukinn meirihluti Alþingis studdi er bæði áhætta Íslands og kostnaður lágmarkaður.“

Vafasamt er að fullyrða að áhætta sé lágmörkuð með samningi sem skuldbindur okkur í erlendum gjaldmiðli ef lög leyfa að annars mætti greiða kröfuna í krónum. Ólíkt kröfum í erlendri mynt geta kröfur í krónum ekki leitt til greiðslufalls ríkisins. Einnig hefur verið bent á að gríðarleg áhætta felst í óvissum endurheimtum úr þrotabúi Landsbankans og gengissveiflum.

„Gagnrýnendur samningsins benda á að endanlegur kostnaður Íslands sé háður óvissuþáttum á borð við heimtur úr þrotabúi Landsbankans, almenna efnahagsþróun og gengisþróun. Þessi atriði eiga einnig við um dómstólaleiðina.“

Þetta er ekki alveg rétt því ef málið vinnst þurfum við ekkert að borga. Ef málið tapast og niðurstaðan yrði auk þess dómur um skaðabætur (sem er alls óvíst) þá væri greiðslan í íslenskum krónum. Að þessu leyti er samningurinn áhættusamari en dómstólaleiðin.

„Jafnvel þótt Ísland ynni málið eftir langdregin málaferli er óvíst um kostnað sem af því stafaði en alþjóðlegu matsfyrirtækin hafa metið það svo að hann yrði okkur þungbærari en fyrirliggjandi samningur.“

Hér er líklega átt við skýrslu Moody’s frá 23. febrúar, sem mat dómstólaleiðina dýrari. Bent hefur verið á að niðurstaða Moody’s er byggð á þeim misskilningi að versta niðurstaða Icesave samningsins sé aðeins 50 milljarðar, en 233 milljarðar munu vera nær því að vera versta niðurstaða samkvæmt sérfræðiáliti GAM Management fyrir fjárlaganefnd.

„Ljúki Icesave deilunni ekki með samningum mun ESA fara með samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA dómstólinn.“

Hið rétta er, að áður en málið fer til EFTA dómstólsins mun ESA þurfa að taka afstöðu til þeirra mótraka sem Ísland á eftir að koma með við athugasemdum þess. Íslenskir og erlendir lögspekingar hafa hrakið athugasemdir ESA lið fyrir lið og varla er réttlætanlegt að fullyrða fyrirfram að ESA muni hafna þeim rökum.

„ESA hefur hingað til unnið 27 af 29 málum sem farið hafa þessa leið og þarf alveg sérstaka tegund af kokhreysti til þess að viðurkenna ekki að dómstólaleiðin felur í sér alvarlega áhættu fyrir Ísland.“

Ef útkoma í dómsmálum réðist af tölfræði þá væru þetta góð rök. Ekkert þessara 29 mála er fordæmisgefandi fyrir Icesave málið. Í nær öllum tilvikum var um borðleggjandi og einföld samningsbrot að ræða. Benda má á að á hverjum tíma eru fjölmörg samningsbrotamál til meðferðar hjá framkvæmdarstjórn ESB án þess að það hafi alvarlegar afleiðingar fyrir viðkomandi aðildarríki.

„Það er beinlínis barnalegt að láta sér detta í hug að Íslandi stæði til boða að greiða samkvæmt núverandi samningi ef EFTA dómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði brotið gegn EES samningnum að því er varðar innstæðutryggingar.“

Hér er alið á þeim misskilningi að Bretar og Hollendingar hafi sjálfdæmi um bætur ef EFTA dómstóllinn ályktar þeim í hag. Hið rétta er að þeir þurfa að höfða og vinna mál fyrir íslenskum dómstólum til að eignast lögvarða kröfu. Íslenskir dómstólar munu dæma eftir íslenskum lögum. Skilyrði skaðabóta þyrfti að sanna, þ.á.m. sanna hvert tjónið er.

„Afleiðingar gætu hugsanlega orðið þær að Íslandi yrði vísað af evrópska efnahagssvæðinu.“

Enginn heimild er til staðar í EES samningnum að vísa aðildarríki af evrópska efnahagssvæðinu. ESB getur sagt upp EES samningnum einhliða en sú uppsögn myndi gilda líka um Noreg og Lichtenstein. Sú leið er afar langsótt. Ekki finnast dæmi um að ríkjum hafi verið vísað úr alþjóðlegu viðskiptasamstarfi vegna lagalegs ágreinings.

„Þá blasti við hætta á að lagður yrði tollur á íslenskar vörur í Evrópu sem hafa notið tollfrelsis frá 1971 og er þá hætt við að „mörgum kotbændunum muni þykja verða þröngt fyrir dyrum“ eins og Einar þveræingur hefði orðað það, þar á meðal öllum sem lífsbjörg hafa af fiskveiðum og vinnslu, þegar 30% tollur yrði lagður á þær vörur í Evrópu.“

Í tollskrá Evrópusambandsins gagnvart ríkjum utan EES finnast ekki dæmi um 30% toll á helstu útflutningsvörum Íslands. Áður en Ísland gekk í EES voru sáralitlir tollar á íslenskum fiskafurðum og varla ástæða til að ætla að þeir yrðu eitthvað hærri þótt svo ólíklega færi að EES samstarfinu lyki vegna ágreinings Íslands, Bretlands og Hollands.

ADVICE hópurinn hefur það að markmiði að upplýsa og miðla upplýsingum um ástæður þess að hafna beri Icesave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 9. apríl næstkomandi. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um málið á: www.advice.is.

Icesave – Lagalegar afleiðingar synjunar
Frosti Sigurjónsson skrifar fyrir hönd ADVICE-hópsins á visir.is þann 21. mars 2011.

Margrét Einarsdóttir forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar HR og LL.M í Evrópurétti fjallar um lagalegar afleiðingar synjunar í samnefndri grein í Fréttablaðinu 17. mars sl. Margrét dregur þar upp afar dökka mynd sem virðist á misskilningi byggð.

Margrét ,,hallast“ að því að EFTA dómstóllinn muni dæma ríkið brotlegt við EES samninginn, fyrir ,,óbeina mismunun á grundvelli þjóðernis“ og einnig fyrir að „hafa ekki komið á fót innstæðutryggingakerfi hér á landi sem virkaði“.

Margrét endurtekur aðeins það sem stendur í áliti ESA. Hún nefnir ekki að aðfinnslur ESA hafa verið vandlega hraktar í greinargerðum Stefáns Más Stefánssonar, Lárusar Blöndal, Peter Örebech og annarra lögfræðinga. Fyrst Margrét kaus að hafa þau rök að engu hefði hún gjarnan mátt útskýra að hvaða leyti hún telji að þessir lögspekingar hafi rangt fyrir sér.

Margrét skrifar: „Dómur EFTA dómstólsins þess efnis að íslenska ríkið hafi brotið gegn samningsskuldbindingum sínum á grundvelli EES-samningsins myndi setja aukinn pólitískan þrýsting á Íslendinga að greiða skuldina. Ef íslenska ríkið yrði ekki við því kynnu samningsaðilar EES-samningsins að grípa til refsiaðgerða gegn okkur á grundvelli samningsins.“ Í fyrsta lagi er óljóst hvað Margrét á hér við. Engar heimildir eru í EES samningnum fyrir að beita samningsríki refsiaðgerðum. Því er ekki hægt að réttlæta refsiaðgerðir á grundvelli hans. Í öðru lagi tekur EFTA dómstóllinn einungis afstöðu til þess hvort að um samningsbrot hafi verið að ræða en ekki til þess hvort brotið teljist bótaskylt. Það er því bæði ólíklegt að samningsaðilar EES-samningsins hafi heimild til þess að beita Íslendinga refsiaðgerðum og að réttlæta megi slíkar aðgerðir fyrr en dómstólar hafa skorið úr um bótaskyldu.

Margrét telur jafnframt „útlokað annað en að íslenskir dómstólar dæmi í samræmi við ráðgefandi álit EFTA dómstólsins.“ Þetta er rangt hjá henni, því íslenskir dómstólar dæma eftir íslenskum lögum og eru ekki bundnir af áliti EFTA dómstólsins. Þess vegna er alls ekki hægt að útiloka að þeir komist að annarri niðurstöðu en EFTA dómstóllinn.

Margrét telur að Bretar og Hollendingar geti vart fengið bætur vegna brots á reglum EES um innstæðutryggingasjóði en telur hins vegar „verulegar líkur“ á að bætur muni fást á grundvelli mismununar.

Margrét telur að viðsemjendur geti krafist þess að fá greidda út alla þá fjárhæð sem þeir lögðu út, en ekki bara lágmarkstrygginguna og

segir: „Skuld Íslendinga við Breta og Hollendinga yrði þá um tvöfalt hærri en samkvæmt [samningnum]“.

Hér skal bent á að í áliti ESA frá því í maí 2010, er varðar mögulegt brot á jafnræðisreglu, er hvergi vísað í annað en lágmarksinnstæðutryggingu. Þ.e. að möguleg mismunun felist í því að tryggingarsjóður hafi ekki greitt Bretum og Hollendingum lágmarksinnstæðutryggingu. ESA hefur nú þegar staðfest með seinna áliti sínu frá 15. desember s.l. að fordæmalausar aðstæður á Íslandi hafi réttlætt tryggingu innstæðna á Íslandi, að fullu umfram lágmarkið, til að tryggja almannaöryggi. Það verður því að teljast mjög ólíklegt að íslenska ríkið verði dæmt til að ábyrgjast innstæður Breta og Hollendinga umfram lágmarkið. Þrátt fyrir að svo ólíklega færi að dómur um fulla greiðslu félli, kæmi á móti forgangur á endurheimtum úr þrotabúi Landsbankans. M.v. nýlegt mat skilanefndar er gert ráð fyrir að eignir muni duga að mestu fyrir öllum forgangskröfum.

Áhættan af dómstólaleiðinni er því mun minni en Margrét hefur talið sér trú um, og miklu mun ásættanlegri en sú áhætta sem fólgin er í samþykkt Icesave samninga.

Tökum ákvörðun réttum forsendum.

ADVICE hópurinn hefur það að markmiði að upplýsa og miðla upplýsingum um ástæður þess að hafna beri Icesave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 9. apríl næstkomandi. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um málið á: www.advice.is.

Allt misskilningur hjá Moody’s ?
Þegar fyrir lá að Icesave samningurinn yrði settur í þjóðaratkvæðagreiðslu, tók matsfyrirtækið Moody’s upp á því að senda frá sér álit um að lánshæfismat Íslands myndi versna ef landsmenn myndu fella Icesave samkomulagið.

Tímasetningin álitsins er grunsamleg en niðurstaðan undarlegri. Það stenst ekki að ríki sem tekur á sig auknar fjárhagsbyrðar teljist þar með betri lántakandi.

Þegar rýnt er í fréttatilkynningu Reuters um álit Moody’s blasir skýringin við:

Moody’s said that if the current bill is rejected, the issue could have to be settled in court. This could take a long time and cost Iceland more than the 50 billion Iceland crowns ($426 million) the government believes to be the maximum tab the Icelandic taxpayer will have to pick up under the current deal.

Sjá: http://uk.reuters.com/article/2011/02/23/iceland-rating-idUKLDE71M1GP20110223

Ekki ber á öðru en að Moody’s telji að VERSTA mögulega niðurstaða Icesave samningsins fyrir Íslendinga sé aðeins 50 milljarðar króna. Það væri óskandi. Hið rétta er að versta niðurstaða samningsins gæti vel numið hátt í 250 milljörðum. Til þess þyrftu heimtur aðeins að versna um 15% og gengi krónunar að veikjast um 1% á ársfjórðungi.

Því miður er ekki er hægt að sjá af fréttini hvaða útkomur Moody’s gefur sér verði dómstólaleiðin farin af viðsemjendum.

Nú er spurning hvort Ríkisstjórn Íslands hafi séð ástæðu til að leiðrétta þennan alvarlega misskilning hjá Moody’s?

Viðtalið við Lárus Blöndal
Fréttablaðið birti þann 5. febrúar viðtal við Lárus Blöndal undir fyrirsögninni “Dómsmál margfalt áhættusamara”. Margt er undarlegt í þessu viðtali en það hefst þannig:

Stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi kunna að fá bakþanka vegna þeirra vaxtakjara sem þau hafa boðið Íslendingum í Icesave-deilunni.  Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður og fulltrúi stjórnarandstöðunnar í samninganefnd Íslands um Icesave, segir það umfram hans væntingar að náðst hafi saman um þau vaxtakjör sem Íslendingum bjóðast í samningnum.

Lárus áréttar að íslenska samninganefndin líti þannig á að Bretar og Hollendingar taki þátt í fjármagnskostnaði með Íslendingum. Þeir kynni málið hins vegar þannig heima fyrir að þeir séu að fá endurgreitt lán.

„Undir þeim formerkjum  lítur mjög  sérkennilega  út  að þeir skuli samþykkja að fá endurgreitt lán með 2,64 prósenta vöxtum meðan lán sem Írum bjóðast eru með 5,8 prósenta vöxtum. Þetta getur augljóslega valdið vandræðum og Lee Buchheit  [formaður samninganefndar Íslands] hefur haft af því áhyggjur hvernig þetta muni þróast þegar fleiri lönd þurfa fjárhagslega fyrirgreiðslu,“

Það er afar sérstakt að Lárus skuli minnast á þá vexti sem Írum bjóðast á láni frá Bretum og Evrópusambandinu. Kjörin á þeim “björgunarpakka” hafa einmitt verið harðlega gagnrýnd. Raunverulegur fjármögnunarkostnaður er líklega undir 3% en samt eru Írar látnir borga 5,8% í einhverju allt öðru skyni en að bjarga þeim úr vanda.

Ólíkt Icesave þá er ljóst að ef Írar taka lán á þeim kjörum, þá er engin vafi á að þeir skuldi andvirðið. Í Icesave málinu er hins vegar deilt um hvort okkur beri yfir höfuð að ábyrgjast skuld einkabankans. Flestir telja meiri líkur en minni á því að við myndum vinna slíkt mál. Í raun er undarlegt að við skulum fallast á að greiða nokkra vexti þegar skylda okkar er ósönnuð.

Fljótt, fljótt skrifum uppá – áður en þeir sjá að sér

Lárusi og Bucheit tókst að semja um verulega lækkun vaxta og voru aðalrök þeirra að deila mætti um hvort krafan væri lögleg. Ef nokkra vexti ætti að greiða ættu þeir í mesta lagi að endurspegla útlagðan fjármagnskostnað viðsemjenda, ekkert umfram það. Viðsemjendur féllust á þessi góðu rök. En í viðtalinu við Fréttablaðið viðrar Lárus áhyggjur af því að Bretar og Hollendingar kunni nú að sjá eftir því.

“Lárus og telur, að eftir því sem vikurnar líði aukist hættan á að Bretum og Hollendingum detti í hug að betra sé að komast út úr málinu frekar en að búa til fordæmi sem aðrar þjóðir gætu vísað í.”

Ætli Bretar og Hollendingar hefðu gert slíkan samning ef þeir teldu hann ekki ásættanlegan? Væru þeir ekki nú þegar búnir að koma sér út úr samningnum ef þeir vildu?

Þetta með fordæmisgildi samningsvaxta v. Icesave kröfu, sem ekki hefur verið sýnt fram á að sé lögvarin, hlýtur að teljast frekar langsótt. Evrópusambandið ákveður vexti í “björgunaraðgerðum” á pólitískum grundvelli þar sem allt önnur sjónarmið ráða ferð og Icesave skiptir þar engu máli.

Annar snúningur ekki í boði?

Lárus er svartsýnn á að hægt sé að ná betri samningi.

„Það kæmi mér mjög á óvart ef Bretar og Hollendingar væru tilbúnir til að setjast niður aftur,“

Það er eflaust rétt hjá Lárusi að samninganefndirnar hafa lokið sínu starfi og hafa því ekkert fleira um að ræða að óbreyttu. Það þýðir hins vegar ekki að þjóðin getir ekki sett skilyrði fyrir sínu samþykki.

Lárus telur að ef Alþingi samþykki ekki samninginn muni viðsemjendur fara dómstólaleiðina. Það getur reyndar vel verið, enda standa þeir þá ekki frammi fyrir öðrum valkosti. Lárus gleymir alveg þeim möguleika að bjóða viðsemjendum okkar upp á einhvern valkost við dómstólaleiðina.

Það sem vantar: Valkostur fyrir Breta og Hollendinga

Samninganefndin gerði sitt besta en niðurstaðan er samt óásættanleg fyrir Íslendinga. Líklega átti samninganefnd viðsemjenda erfitt með að hemja sig í kröfunum, en það þýðir samt ekki að yfirvöld í Bretlandi og Hollandi vilji halda niðurstöðu nefndarinnar til streitu. Samninganefnd er eitt og yfirvöld annað.

Það er óhjákvæmilegt að málið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu, en núverandi samningsdrögum verður að öllum líkindum hafnað ef þau verða lög fyrir þjóðina. Ef Alþingi vill í raun vinna að lausn Icesave deilunnar á það tvo kosti.

Beita landsmenn hræðsluáróðri og blekkingum í þeirri von að þeir samþykki vondan samning í þjóðaratkvæðagreiðslu, eða

Setja fyrirvara við samninginn sem gerir áhættuna viðráðanlega og líklegt væri að landsmenn samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Verði leið 2. farin munu Bretar og Hollendingar hafa samþykktan samning í höndunum – góðan valkost við dómstólaleiðina. Það er auðvitað ekki víst að þeir myndu fallast á útkomuna, en það er alveg eins líklegt. Þeir gætu líka prúttað eða farið hina margumræddu dómstólaleið sem er þó ólíklegast.

Ef þeir velja dómstólaleiðina er það samt ekki endanleg niðurstaða. Dómsmál tæki langan tíma og mörg tækifæri gæfust til að taka upp viðræður á ný.

Ef við töpum málinu, sem er ólíklegt, er heldur ekki víst að við töpum því illa. Minnstar líkur eru á slæmu tapi.

Ríkisstjórnin er gagnslaus og á að víkja núna
Ríkisstjórn Íslands hefur klúðrað þessu Icesave máli fullkomlega og á að víkja. Ef hún þráast við að horfast í augu við þann kost er það skylda hvers þingmanns að fella tillögurnar.

Það þarf nýja ríkisstjórn til að leysa úr deilunni við Breta og Hollendinga. Það ætti að vera hægt enda eru engin lög sem segja að Íslendingar eigi einir að bæta tjón af falli einkabanka sem starfar samkvæmt Evrópskum lögum.  Ríkisstjórn Jóhönnu lét aldrei reyna á rétt okkar af ótta við að spilla fyrir umsókn Íslands í ESB.

Ríkisstjórnin hefur gert sig seka um mörg alvarleg mistök og hér eru örfá dæmi sem tengjast Icesave:

Fórnaði samningstöðu Íslands í Icesave fyrir ESB aðild

Sendi trúnaðarvini í samninganefndina í stað sérfræðinga

Samþykkti ótrúlega lélegan samning

Lét af hendi réttinn til að sækja Breta til saka fyrir það tjón sem þeir bökuðu Íslandi

Skrifaði undir samninginn í skjóli nætur og án þess að bera hann undir þingið

Sagði þinginu ítrekað ósatt um framvindu samninga og ætlaði að leyna samningnum og skjölum fyrir þinginu

Barðist gegn því að eðilegir fyrirvarar yrðu settir við ríkisábyrgð

Spann hræðsluáróður um afleiðingar þess að hafna Icesave

Láðist að kynna umheiminum okkar hlið á Icesave málinu

Lét AGS komast upp með að tefja afgreiðslu sig út af ótengdu máli

Bað Norðmenn aldrei um lánalínu ótengda AGS en það hefði losað þumalskrúfur AGS

Mistókst að sannfæra Breta og Hollendinga um að fyrirvararnir væru endanlegir

Er nú búin að semja við Breta og Hollendinga um að fella niður verðmætustu fyrirvarana

Þessi gagnslausa ríkisstjórn þarf að víkja áður en hún gerir enn fleiri axarsköft og bakar þjóðinni enn meira tjón en orðið er.

Icesave-fyrirvörum breytt

Inngrip: Seðlabankinn spreðar varasjóðnum
Icesave II í höfn og gengið styrkist. Húrra! Voru þetta viðbrögð markaðarins við aukinni skuldsetningu um 700-1000 milljarða? Nei, styrkingin er öll tilkomin vegna inngripa Seðlabankans. Hann er að kaupa krónur á hærra gengi og notar til þess gjaldeyrisforðann.

Gengi krónunnar styrkist