heilbrigðismál – Frosti Sigurjónsson

Heilbrigðiskerfið njóti forgangs
Flestir eru á þeirri skoðun að björgun mannslífa eigi að vera forgangsmál og að veikum og slösuðum verði ávallt veitt besta læknisaðstoð og lyf sem völ er á. Standa beri vörð um heilbrigðiskerfið og tryggja því forgang umfram flest önnur verkefni ríkisins.

Því miður hefur þetta ekki verið raunin undanfarin ár. Niðurskurður í rekstri heilbrigðiskerfisins hefur gengið svo langt að hættuástand hefur skapast.

Forgansröðunin hefur verið kolröng. Var skynsamlegt að setja 10 milljarða í jarðgöng sem stytta þjóðveginn um 9 mínútur, á sama tíma og ekki er til fjármagn til að viðhalda núverandi húsnæði Landspítalans eða endurnýja nauðsynlegustu tæki?

Menning er vissulega mikilvæg, en hvort var brýnna að setja 800 milljónir í safn íslenskra fræða eða kaupa PET skanna sem bjargað getur fjölda mannslífa? Náttúruminjasafn fékk 500 milljónir, en fyrir þá upphæð hefði mátt kaupa skurðróbót fyrir nútíma krabbameinsaðgerðir. Án þessa tæknibúnaðar er íslenska heilbrigðiskerfið orðið langt á eftir þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu eru nýjustu og bestu lyfin ekki lengur í boði hér á landi. Sagt er að Ísland sé þegar orðið 5-10 árum á eftir á þessu sviði. Nýlega voru fluttar fréttir af því að bræður sem hafa greinst með illvígan erfðasjúkdóm þurfi að bíða í fimm mánuði áður en þeir fá nauðsynleg lyf. Helstu einkenni Fabry sjúkdómsins sem þeir búa við eru skemmdir á líffærum og taugaverkjaköst. Er þetta ásættanlegt?

Það kostar ríkið vart minna en 20 milljónir að mennta hvern lækni. Ef læknir hverfur til starfa erlendis þá nýtist sú fjárfesting ekki Íslandi. Það þarf að snúa við landflótta í læknastétt. Það mun ekki takast nema stjórnvöld setji heilbrigðismál í forgang. Það verður ekki nóg að bæta kjörin, það þarf líka að bæta tækjabúnað svo læknar geti beitt hér þeirri tækni sem þeir hafa lært að nota erlendis.

Það þarf að hefja uppbyggingu heilbrigðiskerfisins af fullum krafti. Til þess mun þurfa að bæta kjör heilbrigðisstétta, útvega bestu lyf sem völ er á, og fjárfesta í nauðsynlegum tæknibúnaði.

Um leið og hagur ríkisins leyfir þarf að hefja stækkun Landspítalans. Vegna hrunsins má vera að sú stækkun þurfi að fara fram í smærri og fleiri skrefum en menn hefðu viljað. En verði dregið of lengi að hefja stækkun mun heilbrigðiskerfið vart geta tekið á móti því aukna álagi sem fylgir vaxandi fjölda aldraðra og langveikra Íslendinga.

Öflugt atvinnulíf og hagvöxtur eru forsendur þess að við getum boðið þeim sem eiga við veikindi að stríða bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á. Góðu fréttirnar eru að hér eru gríðarleg tækifæri á ótal sviðum. Við erum staurblönk í bili, en með dugnaði og útsjónarsemi mun hagur landsins vænkast hratt. Í millitíðinni þurfum við að standa vörð um heilbrigðiskerfið.

Þurfum við virkilega meiri steinsteypu núna?
Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu er nú í fullum gangi. Lokanir á skurðstofum og uppsagnir eru daglegt brauð. Fall krónunnar bætir gráu ofan a  svart, því laun starfsfólks í heilbrigðisstéttum á Íslandi eru nú orðin ósamkeppnisfær við það sem býðst á norðurlöndunum. Hættan á landflótta í heilbrigðisstétt magnast. Hvað er til ráða?

Einhvern veginn datt mér ekki í hug að lausnin væri sú að byggja fleiri sjúkrahús. Þess vegna brá mér í brún þegar ég sá þessa frétt á RÚV:

Bygging nýs sjúkrahúss er gríðarlega stórt verkefni og var minnst sérstaklega á það í stöðugleikasáttmálanum sem gerður var í sumar. Viðræður ríkisvaldsins og lífeyrissjóðanna um fjármögnun þessa verkefnis hafa tafist að undanförnu ekki síst vegna Icesave-samningsins. Þær eru nú að komast á skrið aftur og er fundur um verkefnið í viðræðunefnd í dag.[Heimild RÚV]

Það er mikilvægt að halda í störf í byggingariðnaði en það er virðist þó vera enn mikilvægara að halda í störf í heilbrigðiskerfinu. Sé það ekki gert kemur óhjákvæmilega að því að biðraðir munu lengjast eftir þjónustu, einnig eftir lífsnauðsynlegri þjónustu eins og skurðaðgerðum, krabbameinslækningum og bráðamóttöku. Biðraðir voru samt nógu langar áður en niðurskurðurinn hófst:

Sjúklingar hér heima þurfa yfirleitt að bíða sárþjáðir í 327 daga eftir mjaðmaaðgerð, svo að dæmi sé tekið: þetta mun vera Evrópumet. Gamalt fólk þarf jafnan að bíða í 18 mánuði eftir plássi á dvalarheimilum og þannig áfram. [Vísbending 2004, Þorvaldur Gylfason]

Eftir því sem heilbrigðisþjónusta okkar verður lakari og ósamkeppnishæfari við það sem býðst í nágrannalöndum þá magnast hættan á landflótta. Eins og venjulega, þá fara þeir fyrstir sem hafa mesta menntun og mesta möguleika til að skapa verðmæti í kringum sig og eftir sitja hinir til að takast á við vandann.

Er óhætt að skera frekar niður í heilbrigðiskerfinu þegar lækkun krónunnar er nú þegar búin að lækka laun í heilbrigðisstétt um helming?

Þessi sjúkrahúsbygging verður að bíða betri tíðar.  Fjármagnið ætti frekar að nota til að halda heilbrigðiskerfinu í fullum gangi og draga úr landflótta hjá heilbrigðisstéttum. Það er arðbær fjárfesting.