Gas – Frosti Sigurjónsson

Gasöld gengin í garð
Nýjar námuaðferðir “e. fracking” hafa opnað Bandaríkjamönnum aðgang að gríðarlegu magni af jarðgasi sem bundið er í setlögum (“shale”). Framboð af jarðgasi vestan hafs hefur stóraukist undanfarin ár og verð á gasi og ýmsum tengdum afurðum lækkað hratt.“Fracking” er stytting á orðinu “hydraulic fracturing” sem mætti þýða vökvaknúin sprungumyndun. Aðferðin felur í sér að blöndu af vatni, sandi og kemískum efnum er dælt niður í borholu undir miklum þrýstingi. Oft er holan boruð lárétt inn í þau setlög sem binda gasið. Gasið getur þá losnað úr setlögunum og leitað upp á yfirborðið um sprungurnar þegar niðurdælingu lýkur.

Því miður er þessi vinnsluaðferð ekki án vandamála. Niðudælingin getur komið af jarðskjálftum, sérstaklega á jarðskjálftasvæðum og ef fóðringar í borholum rofna getur niðurdælingarvökvinn sloppið út í grunnvatn og valdið mengun.

Talið er að gasbirgðir í setlögum Norður Ameríku gætu enst út öldina. Tækifærin eru svo mikil að menn tala um að gasöldin sé hafin. Fjárfestar hafa tilkynnt áform um að setja $90 milljarða í alls kyns framleiðslu úr gasi svo sem fljótandi eldsneyti, áburð og efnavörur.

Kínverjar eiga líka gríðarlegar birgðir af gasi í setlögum og þarlendur iðnaður mun njóta góðs af því. Bretar eiga einnig setlög sem geyma gas og í gær samþykkti breska þingið lög sem leyfa “fracking”.

Aðgangur að ódýru gasi mun því vafalaust efla hagvöxt í Bandaríkjunum, Kanada, Kína og Bretlandi næstu áratugi. Samkeppnishæfni þessara iðnríkja mun styrkjast gagnvart öðrum ríkjum t.d. evrópuríkjum sem ekki hafa jafn greiðan aðgang að þessari ódýru orku.