Rafbók – Frosti Sigurjónsson

Bókin um ESB – Rafbók
Bókin um ESB

Þessi bók er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka af­stöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg.

Þetta er ekki bók um kosti og galla aðildar Íslands að ESB, heldur gefur hún greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórn­kerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega er fjallað um eigin­leika tolla­banda­lags ESB, stefnu þess í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum og einnig um utanríkismál ESB og myntbanda­lag evrunnar.

Áföll eins og fjármálahrun, Brexit, flóttamannavandi og heims­faraldur, sýna styrkleika og veikleika sambandsins og bókin rekur hvernig ESB gekk að vinna úr þeim.

Í byrjun árs 2026 glímdi Evrópusambandið við stór vandamál sem tekin eru til skoðunar í bókinni, svo sem vaxandi lýðræðishalla, öldrun, versn­andi skulda­stöðu, ófjármagnaða lífeyrissjóði, stríð í Úkraínu, hátt orku­verð og ef­na­hags­samdrátt. Á sama tíma hefur fylgispekt aðildar­ríkjanna við stefnu og ýmsar ákvarðanir ESB minnkað.

Evrópusambandið er nú á krossgötum. Leiðtogar sumra aðildarríkja og æðstu embættismenn ESB segja nauð­syn­legt að ESB verði að sam­bands­ríki og herveldi til að ráða við aðsteðjandi vandamál og treysta stöðuna í sam­keppni stór­velda í framtíðinni.

Þessi bók er skrifuð fyrir þá sem vilja skilja betur hvernig ESB starfar og hverjar áskoranir þess eru í dag, einskonar rýniskýrsla og skyldu­lesning fyrir þá sem vilja vita „hvað er í pakkanum“.

Hitamál – Rafbók (pdf)
Loftslagsmálin hafa á örfáum árum orðið eitt stærsta viðfangsefni samfélagsins. Stefnan á kolefnishlutleysi kallar á sífellt umfangsmeiri og kostnaðarsamari aðgerðir í trausti þess að vísindin séu hafin yfir vafa.

Það er staðreynd að jörðin hefur hlýnað og að koltvísýringur hefur aukist. En vísindamenn eru ekki sammála um hversu stór hluti hlýnunarinnar skýrist af náttúrulegum sveiflum, losun manna eða samspili beggja. Loftslag jarðar er flókið kerfi þar sem margir þættir verka saman þar á meðal skýjahula, hafstraumar, mengun og sólvirkni. Koltvísýringur skiptir máli, en er aðeins einn þáttur af mörgum.

Hitamál fjallar um þetta og sögu loftslagsbreytinga, óvissu í mælingum, spár sem hafa brugðist, vafasöm úrræði til að draga úr losun og aukaverkanir íþyngjandi regluverks. Bókin byggir á fjölda rannsókna og heimilda og dregur fram gögn sem vekja spurningar.

Hitamál er bók fyrir þá sem vilja íhuga hvort núverandi stefna í loftslagsmálum sé raunhæf eða hvort kominn sé tími til að huga að öðrum leiðum.