Uppskriftir – Frosti Sigurjónsson

Rósasulta – Uppskrift
Hér á landi virðist ekki algengt að nýta rósir í matargerð en það er ljómandi gott að skreyta salöt með rósablöðum eða að gera sultu og te úr blómunum.

Víða erlendis, t.d. í Frakklandi, þykir rósasulta hið mesta sælgæti.  Það er eiginlega synd að hér á landi fá útsprungnar rósir bara að fölna og fjúka burt. Auðvitað er mikilvægt að borða eingöngu rósir sem hafa sloppið við eiturefni.

Hér er uppskrift að rósasultu sem tekur bara hálftíma að útbúa.

Það eina sem þarf:

Ein pottfylli af útsprungnum rósum (t.d. Dornrós) sem eru jafnvel að byrja að fölna.

Safi úr einni sítrónu

Sultusykur – c.a. einn bolli

Hálfur bolli af vatni

Aðferð:

Setjið rósirnar og vatnið í stálpott og látið suðuna koma upp.

Sjóðið með lokið á í c.a. 10 mínútur.

Bætið sykri og sítrónusafa útí.

Látið sultuna malla rólega í nokkrar mínútur, þar til hún er farin að hlaupa.

Prófið öðru hvort sultan sé farin að hlaupa með því að láta nokkra dropa af henni kólna á diski.

Sótthreinsið krukkurnar og lokin t.d. með sjóðandi vatni. Setjið svo heita sultuna í krukkur og lokið. Geymist vel í ískáp.

Rósasulta gefur rósabragð sem er sætt og milt. Sultan passar vel með hvítum ostum og í Frakklandi þykir gott að setja jafnvel smá rósasultu í glas af freyðivíni.

Gerum kavíar úr laxahrognum
Það er mikil sóun að henda hrognum úr nýveiddum laxi en það gera samt flestir sem ég þekki. Það er eins og menn átti sig ekki á því hvaða verðmæti þeir hafa í höndunum. Kavíar úr villtum laxi er alger lúxus og selst á 7.500 kr. kílóið.

Þegar líður á seinni hluta veiðitímabilsins eru hrognin farin að stækka og þá er um að gera að nýta þau í kavíar.

Það er einfalt og fljótlegt að gera kavíarinn hér er aðferðin:

Þú þarft:

1 Stórt sigti

2 Stórar skálar úr gleri eða stáli

1.5 lítrar volgu vatni (38 c)

200 gr salt

Skrefin:

Fyrst er að laga saltpækilinn: Blanda saman 2 lítrum af volgu vatni og 200 gr af salti í stóra glerskál.

Síðan er að hreinsa hrognasekkina að utan undir kalda krananum.

Svo er að setja hrognsekkina í saltpækilinn og láta þá liggja í honum í c.a. 30 mínútur. Þetta á að losa um sekki og himnur. Gott að opna sekkina varlega svo pækillinn komist að hrognum og himnum.

Eftir að hálftíminn er liðinn er pækillinn sigtaður frá hrognunum og geymdur.

Nú þarf að aðskilja hrognin frá himnunum. Þau eru nudduð varlega undir volgu rennandi kranavatni yfir sigti. Volga vatnið og nuddið losar hrognin úr himnunum. Mikilvægt að fjarlægja allar himnur. Ágætt að dýfa sigtinu í skál með volgu svo himnur fljóti upp, en hrogn eru þyngri en vatn og sökkva.

Þegar öll hrognin eru orðin laus og hrein eru þau sett í saltpækilinn og látin standa þar í einhverja stund til að saltast: 10 mínútur ættu að duga.

Að lokum eru hrognin síuð frá pæklinum og sett í krukkur. Þau eru nú tilbúin til neyslu en ættu líka að geymast ágætlega í ísskáp – trúlega í nokkrar vikur.

Laxakavíar er frábær með blinis, sýrðum rjóma og smátt söxuðum lauk og einum dropa af sítrónusafa. Líka fínn á ristað franskbrauð með smjöri eða kex með kotasælu.

Ekki sakar að skola þessu niður með freyðivíni eða vodka.