ESB – Frosti Sigurjónsson

Hvers vegna gera sum fyrirtæki á evrusvæðinu upp í annarri mynt en evru?
Sum Íslensk fyrirtæki halda bókhald í annarri mynt en krónu, oft USD eða EUR. Það sama á við á um fyrirtæki á evrusvæðinu sum þeirra gera upp í USD eða öðrum gjaldmiðlum en evru.

Fyrirtækjum á evrusvæðinu er ekki skylt að nota evru í fjárhagslegri skýrslugerð sinni.  Fyrirtæki getur ákveðið hver sé virkur gjaldmiðill þess (functional currency) — það er sá gjaldmiðill sem endurspeglar best hið aðal efnahagsumhverfi fyrirtækisins. Við það mat er meðal annars horft til þess hvaða gjaldmiðill hefur mest áhrif á söluverð, kostnað, laun, fjármögnun og sjóðstreymi.

Kynningar- eða skýrslugjaldmiðill (presentation currency) getur síðan verið annar en virki gjaldmiðillinn, til dæmis í samstæðureikningum eða gagnvart fjárfestum.

Þessi sveigjanleiki gerir fyrirtækjum kleift að samræma bókhald sitt betur að rekstrarlegum veruleika, draga úr flækjustigi og minnka áhrif gengissveiflna á reikningsskil.

Nokkrar ástæður fyrir vali á öðrum uppgjörsgjaldmiðli en evru

Ríkjandi tekjur og verðlagning
Þegar stór hluti tekna er verðlagður og greiddur í öðrum gjaldmiðli — til dæmis bandaríkjadölum í alþjóðlegum útflutningi — endurspeglar sá gjaldmiðill betur raunverulega afkomu fyrirtækisins.

Samræming innan samstæðu
Dótturfélög alþjóðlegra samstæðna taka oft upp sama skýrslugjaldmiðil og móðurfélagið til að einfalda samstæðureikninga, draga úr þýðingarmun og auðvelda samanburð.

Fjármögnun og kostnaðarsamsetning
Fyrirtæki með verulegar skuldir, fjárfestingar eða kostnað í bandaríkjadölum kjósa gjarnan USD sem virkan gjaldmiðil til að  einfalda reikningsskil.

Óskir fjárfesta og skráning á mörkuðum
Fyrirtæki sem eru skráð í Bandaríkjunum eða sækja fjármagn á alþjóðlegum mörkuðum velja oft USD til að höfða betur til bandarískra fjárfesta og einfalda upplýsingagjöf.

Skatta- og reglugerðarsjónarmið
Holland og Írland heimila fyrirtækjum að nota aðra gjaldmiðla en evru í skattalegum tilgangi þegar rekstrarforsendur réttlæta það.

Alþjóðlega virk fyrirtæki í tækni, lyfjaiðnaði, flugvélaframleiðslu, hrávöruviðskiptum og fjármálaþjónustu velja oft aðra gjaldmiðla en evru sem uppgjörsmynt.

Nokkur dæmi

Flutter Entertainment plc (Írland)
Írska félagið, sem á meðal annars FanDuel og Paddy Power, birtir samstæðureikninga sína í USD. Ástæðurnar eru umfangsmikil starfsemi í Bandaríkjunum, skráning á NYSE og sú staðreynd að bandaríski markaðurinn er orðinn kjarninn í rekstri félagsins.

Trinity Biotech plc (Írland)
Þetta greiningarfyrirtæki, sem skráð er á NASDAQ, birtir reikningsskil sín í USD samkvæmt IFRS. Alþjóðlegar tekjur og bandarískur fjárfestahópur gera dollarann að eðlilegum skýrslugjaldmiðli.

Hollensk fyrirtæki samkvæmt reglum um virkan gjaldmiðil
Í Hollandi geta fyrirtæki fengið heimild til að nota USD eða aðra gjaldmiðla sem virkan gjaldmiðil í bókhaldi og skattaskilum ef það endurspeglar betur tekjur, kostnað eða samstæðutengsl. Þetta er algengt meðal dótturfélaga bandarískra fjölþjóðafyrirtækja.

Þýsk dótturfélög bandarískra móðurfélaga
Þýsk söluskrifstofu- og þjónustufyrirtæki, sem starfa í nánu sambandi við bandarísk móðurfélög, nota oft USD sem virkan gjaldmiðil þar sem fjármögnun og tekjuflæði eru tengd dollarakerfinu.

Fjármögnunar- og eignarhaldsfélög í Lúxemborg
Mörg slík félög nota USD þegar eignir, skuldir og fjárfestar eru að mestu tengd bandaríkjadal. Það stuðlar að betri samræmingu og minni gjaldeyrisáhættu.

Niðurstaða

Val á öðrum uppgjörsgjaldmiðli en evru er fyrst og fremst til að auka skýrleika, minnka flækjustig hjá fyrirtækjum sem eru í erlendri starfsemi. Sama gildir að sjálfsögðu um íslensk fyrirtæki sem kjósa að gera upp í annarri mynt en krónu.

Rætt var um Bókina um ESB í hlaðvarpinu Brotkast
Frosti Logason bauð mér í hlaðvarpið til að ræða Bókina um ESB. Við ræddum meðal annars um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu, efnahagsmál Evrópusambandsins og Íslands. Vexti og gjaldmiðlamál. Hægt er að hlusta á bút úr þættinum á Youtube eða á Spotify.

Geta evruríki gengið úr ESB?
Engin ákvæði um útgöngu úr myntbandalaginu

Upptaka evru er eitt af skilyrðum aðildar að Evrópusambandinu. Í sáttmálum sambandsins eru ítarleg ákvæði um hvernig aðildarríki skuli undirbúa inngöngu í myntbandalagið. Þau þurfa að uppfylla vel útfærð skilyrði.

En það er hvergi gert ráð fyrir þeim möguleika að ríki geti hætt með evru. Skilmálarnir innihalda engin ákvæði um hvernig ríki geti gengið út úr myntbandalaginu á öruggan hátt.

Það eru vissulega ákvæði í sáttmálunum um að ríki geti gengið úr ESB, en þau fjalla ekki um evruna. Þar stendur efnislega að úrsögn úr ESB taki gildi tveimur árum eftir að tilkynning um úrsögn berst og semja skuli við útgönguríkið á þeim tíma. Ekki stendur neitt um evru, eða að gætt skuli jafnræðis í þeim samningum.

Ójafn leikur

Ríki sem ákveður að ganga úr ESB er í miklu veikari samningsstöðu en ESB. Án samnings hefur útgönguríkið ekki aðgang að innri markaðinum, sem er í flestum tilfellum mjög mikilvægur fyrir ríkið. ESB missir vissulega hluta af sínum markaði, en aðeins lítið brot. Án ákvæða um að ESB skuli gæta jafnræðis getur útganga verið háskaleg

Brexit – víti til varnaðar

Þegar Breska þjóðin kaus að hætta í ESB, brást ESB illa við og krafðist hátt í 40 milljarða punda greiðslu áður en samningar hefðust. Þetta kom Bretum á óvart því þeir höfðu frá fyrstu tíð greitt meira til sambandsins en þeir fengu til baka.

Aðalsamningamaður ESB, Michel Barnier, lét þau orð falla að hann vildi kenna Bretum lexíu um hvað það þýddi að yfirgefa innri markaðinn. Guy Verhofstad, sem fór með Brexit málefni fyrir Evrópuþingið sagði í ræðu að það mætti ekki gerast að ríki sem gengi út fengi betri kjör en ríki sem væru í ESB því það gæti þýtt endalok ESB. Donald Tusk (sá sem nýverið gaf forsætisráðherra Íslands Prins Póló), þáverandi forseti leiðtogaráðs ESB, sagði í ræðu að þeir sem hefðu barist fyrir útgöngu Bretland ættu heima á „sérstökum stað í helvíti“.

Það er því augljóslega ekki eitt af markmiðum ESB að gera aðildarríkjunum auðvelt að endurheimta fullveldi sitt. Bretland, sem er eitt af öflugustu ríkjum heims og með sjálfstæðan gjaldmiðil, tókst að ganga út en með herkjum.

Er útganga úr evru möguleg?

Bretar höfðu pundið, en evruríki sem hyggst ganga úr ESB stendur frammi fyrir óleystu vandamáli.

Við upptöku nýs gjaldmiðils þarf að breyta öllum evru-innstæðum í nýja gjaldmiðilinn á tilteknu gengi. Flestir sem ættu innstæður í bönkum útgönguríkisins myndu vilja forðast að þeim verði skipt í gjaldmiðil sem líklegur er til að veikjast. Þeir myndu þá vilja taka út evrur sínar eða millifæra þær á reikninga í öðrum löndum.

Um leið og evruland tilkynnir úrsögn úr ESB má búast við að bankar verði fyrir áhlaupi. Því þyrfti að leyna slíkum áformum vandlega og gjaldeyrishöft gætu verið nauðsynleg meðan breytingin gengi yfir. Setja þyrfti lög um að allir innlendir samningar færðust úr evrum yfir í nýja gjaldmiðilinn á tilteknu gengi og svo framvegis.

Meðal hagfræðinga sem hafa fjallað um útgönguvandann er bandaríski prófessorinn Barry Eichergreen sem hefur sagt: „upptaka evru er í raun ekki afturkræf“ og „útganga myndi þurfa langan undirbúning og væntingar um gengisfellingu myndu valda fjármálakreppu allra tíma“.

Geta evruríki endurheimt fullveldi sitt?

Því er haldið fram að Evrópusambandið sé samstarf fullvalda ríkja. Þótt þau hafi framselt hluta af löggjafarvaldi sínu, framkvæmdavaldi og dómsvaldi til miðlægra stofnana ESB séu þau samt fullvalda. Þeim sé frjálst að ganga úr ESB eins og Brexit sýndi. En á það við um evruríkin?

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru, yrði útganga nær ómöguleg. Fullveldið yrði þá ekki endurheimt nema með mikilli samstöðu Íslendinga sem væru tilbúnir til að ganga í gegnum erfiðleika. Ólíklegt er að slík samstaða næðist nema vistin í ESB væri orðin óþolandi.

Ef til vill á þessi ómöguleiki á útgöngu þátt í því að nokkur aðildarríki ESB hafa hikað við að taka upp evru, þar á meðal Danmörk, Svíþjóð, Pólland, Tékkland, Ungverjaland og Rúmenía. Þessi ríki eiga ennþá raunhæfa möguleika á útgöngu, þótt hún sé ekki auðveld.

Niðurstaðan

Gangi Ísland í ESB og taki upp evru, þá er engin örugg leið út aftur.

Neitunarvald þjóða sem var reglan í upphafi evrópusamvinnunnar og helsta vörn smáþjóða gegn óhagstæðri löggjöf, heyrir nú orðið til undantekninga. Auk þess er það yfirlýst stefna ESB að fella neitunarvald þjóða niður á þeim sviðum sem eftir standa. Krafan um að ESB verði að sambandsríki verður stöðugt háværari.

Ísland ætti ekki annan kost en að samþykkja ákvarðanir ESB og fljóta með straumnum þangað sem hann liggur hverju sinni. Útganga væri einfaldlega of erfið til að vera raunhæfur valkostur.

Umsögn um tillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna
Til utanríkismálanefndar Alþingis
umsagnir@althingi.is

7. apríl 2026

Umsögn um tillögu utanríkisráðherra til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mál 516 á 157. löggjafarþingi.

Undirritaður mælir gegn tillögunni. Byggir sú afstaða einkum á því að tímasetning fyrir­­­­­­hugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu veitir Alþingi, umsagnaraðilum og kjósendum óeðlilega skamman tíma til að fjalla um svo flókið og umdeilt mál, auk þess sem megnið af umræðutímanum fellur á sumarmánuðina. Þá er orðalag spurningarinnar talið villandi þar sem ekki er raunhæft að „halda áfram“ viðræðum, heldur myndi þurfa að hefja aðildarferli að verulegu leyti frá grunni. Einnig er bent á að aðstæður hafi tekið miklum breytingum frá því viðræður stóðu síðast, að núverandi ríkisstjórn sé ekki bundin þeim fyrirvörum sem Alþingi setti árið 2009 og að lítið pólitískt umboð sé til að hefja aðildarviðræður. Með hliðsjón af skorti á meirihlutastuðningi, óvissu um mögulegar undanþágur frá regluverki ESB og þeim áhrifum sem aðild gæti haft á fullveldi og hagsmuni Íslands, er talið óraunhæft og óheppilegt að setja slíkt ferli af stað. Niðurstaðan er sú að fresta beri málinu eða fella það, þannig að tryggt sé að bæði Alþingi og kjósendur fái nægt ráðrúm og skýrar forsendur áður en tekin er ákvörðun um jafn umfangsmikið álitaefni.

1. Of knappur tími fyrir lýðræðislega umræðu

Tillagan leggur til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst 2026.

Í 26. gr. kosningalaga nr. 112/2021 segir að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram í fyrsta lagi þremur mánuðum og í síðasta lagi einu ári eftir að þingsályktunartillaga hefur verið samþykkt á Alþingi. Markmið ákvæðisins er að tryggja kjósendum ráðrúm til að kynna sér málefnið áður en þeir taka ákvörðun og leyfa lýðræðislegri umræðu að þroskast í samfélaginu.

Dagsetningin í tillögunni skammtar bæði þingi og kjósendum of skamman tíma.

Þar sem efni tillögunnar varðar stórt og flókið álitamál er nauðsynlegt að Alþingi fái rýmri  tíma til að fjalla um hana. Hafa þarf í huga að vegna sveitarstjórnarkosninga falla þingstörf niður þann 11. maí í eina viku. Það verður að teljast ólíklegt að þinginu takist að ljúka umfjöllun um tillöguna fyrir lok maí en þá eru þrír mánuðir til loka ágúst.

Þrír mánuðir eru nálægt því að teljast ólöglega skammur tími samkvæmt 26. gr. kosningalaga. Í greinargerð utanríkisráðherra með tillögunni er ekki að finna rök fyrir því að skerða umþóttunartíma kjósenda með þessum hætti. Skýringar á flýtinum er ekki heldur að finna í sáttmála ríkisstjórnarinnar, því þar er aðeins stefnt að þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir árslok 2027.

Bagalegt er að fresturinn fellur á sumarmánuðina, þar sem kjósendur, stofnanir og hreyfingar sem þurfa að útbúa gögn til að kynna rökin með og móti, vildu eflaust frekar nýta sumarið til að sinna fjölskyldunni, ferðalögum og útivist fremur en kynna sér þetta mál frá öllum hliðum. Utanríkisráðherra er ekki að taka tillit til landsmanna með því að leggja sumarið undir málið.

Til að dagsetningin 29. ágúst 2026 gangi upp hefði ráðherra þurft að leggja tillöguna miklu fyrr fram. Tillöguna er ekki að finna á upprunalegri né uppfærðri  þingmálaskrá ríkisstjórnar- innar fyrir vorið, en samkvæmt þingskaparlögum er þingmálaskrá ætlað að gefa þingmönnum og nefndum svigrúm til að undirbúa sig undir komandi mál. Þar sem málefnið er ekki augljólega brýnt og engin skýr ástæða komið fram um að kosið verði 29. ágúst, hlýtur þingið að taka sér þann tíma sem það þarf til að fjalla um málið þó það þýði frestun atkvæða- greiðslunnar.

Almenna reglan er að umsagnarfrestur um þingmál sé ekki minni en tvær vikur. Þetta er talinn vera lágmarkstími til að samtök, stofnanir og einstaklingar geti rýnt málið og skilað vandaðri umsögn. Í viðamiklum og umdeildum málum er fresturinn oft lengdur í 3-4 vikur eða meira. Utanríkismálanefnd veitti í þessu tilfelli umsagnarfrest sem er tvær vikur og fjórir dagar. Þar af eru fjórir lögboðnir frídagar: Skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur og annar í páskum. Fresturinn er því í allra stysta lagi og tekur ekki tillit til umfangs málsins.

Að lokum má nefna að Alþingi kemur ekki saman eftir sumarið fyrr en í byrjun september. Þá yrði þjóðaratkvæðagreiðslan afstaðin, sem væri óheppilegt, því umræður á vettvangi Alþingis gætu verið mjög upplýsandi fyrir kjósendur um rökin bæði með og móti viðræðum við ESB.

Í greinargerð með tillögunni eru engin rök færð fyrir því að hraða beri málinu gegnum þinglega meðferð með sem stystum tímafresti til umræðna. Ráðherrann lét hjá líða að setja málið á þingmálaskrá, hann kom of seint fram með málið til að þingið gæti gefið því nægilega umfjöllun. Undirritaður hvetur nefndina til að taka sér þann tíma sem hún þarf til að fjalla um málið af ekki minni metnaði en gert var árið 2009.

Dagsetningin 29. ágúst gefur kjósendum stysta mögulega frest sem lög leyfa, aðeins þrjá mánuði, sem allir falla á sumartímann, til að kynna sér málið vandlega og taka upplýsta ákvörðun.

Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að utanríkismálanefnd breyti dagsetningunni þannig að nefndin sjálf og þingið fái þann tíma sem þarf til að fjalla um málið og tryggja að almennir kjósendur fái meira ráðrúm en lögboðinn lágmarksfrestinn til að setja sig inn í málið.

2. Spurningin er villandi

Í tillögu utanríkisráðherra er lagt til að eftirfarandi spurning verði lögð fyrir kjósendur:

„Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?

❏     Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

❏     Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“

Þetta orðalag er villandi því það er ekki raunhæft að „halda áfram“ aðildarviðræðum sem, byggja á aðildarumsókn frá 2009, hófust í júlí 2010 og gert var hlé á í janúar 2013. Viðræðum var formlega slitið árið 2013, samninganefndir voru leystar frá störfum, auk þess sem staða Íslands sem umsóknarríkis var afturkölluð í mars 2015. Síðan þá hefur Ísland ekki verið í lista ESB yfir umsóknarríki. Sú ríkisstjórn sem nú stýrir landinu er ekki bundin af þeim fyrirvörum sem þingið setti árið 2009 um aðildarviðræðurnar. Þeim sömu viðræðum verður því ekki haldið áfram.

Þótt forseti framkvæmdastjórnar ESB hafi svarað því til að umsókn Íslands frá 2009 sé gild (e. valid) geta aðildarviðræður samt ekki hafist nema Ísland fái stöðu umsóknarríkis. Til að Ísland fái þá stöðu þarf ríkisstjórnin að óska eftir því, sem er þá ígildi aðildarumsóknar. Því væri heiðarlegast að spyrja kjósendur hvort þeir vilji að sótt verði um aðild að ESB á nýjan leik.

Verði ráðherraráð ESB sammála um að veita aðildarumsókn brautargengi, er næsta skref að fela Framkvæmdastjórn ESB að vinna skýrslu og álit. Framkvæmdastjórnin sendir þá íslenskum stjórnvöldum lista með þúsundum spurninga. Það er ólíklegt að það dugi að senda aftur 16 ára gömul svör við þeim, enda hefur margt breyst. Framkvæmdastjórnin mun þurfa að vinna nýja skýrslu. Sé niðurstaðan sú að Ísland teljist hæft til að fá stöðu umsóknarríkis tekur Leiðtogaráð ESB umsóknina til umfjöllunar. Krafist er einróma samþykkis ráðsins til að Ísland hljóti formlegu stöðu umsóknarríkis. Þá fyrst geta aðildarviðræður hafist.

Utanríkismálanefnd þarf að tryggja að spurningin sem lögð verður fyrir kjósendur gefi ekki þá mynd að vinna sem unnin var á árunum 2009 til 2013 sé enn í fullu gildi og það sé bara hægt að „halda áfram“ viðræðum eins og fátt hafi breyst.  Hið rétta er að mestur hluti vinnunnar er úreltur og það þyrfti að hefja viðræður nánast frá grunni.

Það er lágmarkskrafa að utanríkismálanefnd taki spurninguna til skoðunar og breyti henni þannig að hún villi ekki um fyrir kjósendum.

3. Óraunhæft að „halda áfram“

Síðan viðræðum var hætt árið 2013, hefur Evrópusambandið innleitt þúsundir nýrra reglna og tekið margvíslegum breytingum. Auk þess hefur Bretland, sem er eitt mikilvægasta viðskipta- land Íslands, gengið úr Evrópusambandinu og í framhaldi gert fríverslunarsamning við Ísland.

Á þeim 13 árum síðan viðræðum lauk, hefur sambandið glímt við flóttamannavanda, heims- faraldur, stríð og orkukreppu. Skuldastaða stóru aðildarríkjanna hefur versnað til muna og mörg þeirra glíma við efnahagssamdrátt. Staða ESB hefur versnað og horfur eru frekar dökkar. Bókin um ESB – hvað er í pakkanum? fjallar nánar um stöðu Evrópusambandsins í dag og þau vandamál sem það glímir við. Allir þingmenn hafa fengið rafrænt eintak af bókinni og eru hvattir til að lesa hana til að fá betri yfirsýn yfir stöðuna.

Ísland hefur sömuleiðis tekið breytingum, en í öllum helstu atriðum til hins betra. Í krafti fullveldis og forræðis yfir auðlindum landsins, hefur landsmönnum tekist að brjótast út úr þeim mikla efnahagsvanda sem blasti við í kjölfar hrunsins. Krónan er laus úr höftum og verið tiltölulega stöðug, hagvöxtur hefur verið mun meiri en í ESB og eignir Íslands erlendis eru orðnar hærri en erlendar skuldir. Ísland er í efsta sæti á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna.

Vegna breyttra aðstæðna og breytinga á regluverki ESB er óhjákvæmilegt annað en að þeir viðræðukaflar sem opnaðir voru í fyrri aðildarviðræðum, verði opnaðir á nýjan leik. Þegar þær viðræður sigldu í strand hafði aðeins tekist að loka 11 viðræðuköflum af 35. Ekki var búið að opna erfiðustu kaflana.

Það er mikilvægt að þjóðin verði upplýst um hve lítill árangur náðist í raun og veru í fyrri aðildarviðræðum, allavega hvað það varðar að tryggja meginhagsmuni Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Þar miðaði lítið sem ekkert.

4. Ríkisstjórnin er ekki bundin af fyrirvörum Alþingis frá 2009

Sú aðildarumsókn sem ríkisstjórn Íslands lagði fram 16. júlí 2009 var samþykkt af Alþingi en með afar mikilvægum fyrirvörum um grundvallarhagsmuni Íslands sem voru tíundaðir í ítar- legu áliti meirihluta utanríkismálanefndar um málið á þskj. 249, 38. mál.

Alþingi setti þáverandi ríkisstjórn skilyrði um hversu langt hún mætti ganga í viðræðum við ESB. Alþingi gerði sömuleiðis kröfu um að ríkisstjórnin hefði náið samstarf við þingið á öllum stigum málsins og lét fylgja:

„Að mati meirihlutans verður ekki vikið frá þeim hagsmunum án undanfarandi umræðu á vettvangi Alþingis.“

Þeir ítarlegu fyrirvarar sem fylgdu málinu af hálfu Alþingis árið 2009 eru ekki bindandi fyrir núverandi ríkisstjórn.

Fái ríkisstjórnin umboð beint frá kjósendum í þjóðaratkvæðagreiðslu til þess að taka upp aðildarviðræður við ESB er Alþingi ekki í aðstöðu til að setja ríkisstjórn skilyrði um að hafa Alþingi með í ráðum á öllum stigum málsins og tryggja að ekki verði vikið frá hagsmunum án aðkomu Alþingis.

Mögulega gæti Alþingi samið og sett vandaða fyrirvara um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslunnar og það ferli sem færi af stað ef kjósendur vilja hefja aðildarviðræður. Afar ólíklegt er að þær örfáu vikur sem nú eru til stefnu muni duga til þeirrar vinnu.

Utanríkismálanefnd verður því að hafna ályktuninni eða að öðrum kosti gefa sér þann tíma sem þarf til að setja ríkisstjórninni traustan ramma um samráð og gæslu þjóðarhagsmuna líkt og gert var árið 2009.

5. Of veikt umboð til að setja aðildarviðræður á dagskrá

Í aðdraganda kosninga ítrekaði formaður Samfylkingar, núverandi forsætisráðherra, að ESB aðild myndi ekki verða á dagskrá á kjörtímabilinu. Formaðurinn lofaði einnig því að efna- hagsmálin yrðu í forgangi og hún vildi alls ekki að átök um ESB aðild myndu kljúfa þjóðina. Kjósendur gætu treyst hennar orðum.

Flokkur fólksins er andvígur aðild að ESB og kjósendur hans voru sannarlega ekki að kalla eftir ESB vegferð í þessum kosningum..

Aðild að ESB er hinsvegar helsta stefnumál Viðreisnar þótt það hafi ekki verið í forgrunni í aðdraganda kosninga. Viðreisn fékk aðeins 16% atkvæða, en það getur varla talist nógu sterkt umboð til að hefja aðildarviðræður við ESB.

Með svo lítinn stuðning við málefnið er hætt við að aðildarviðræður verði í raun sóun á kröftum alls stjórnkerfisins og fjármunum skattgreiðenda.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um að halda áfram viðræðum er auk þess blekkjandi, því það er yfirlýst markmið Viðreisnar að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þjóðaratkvæðagreiðslan er því aðferð Viðreisnar til að draga Ísland inn í aðildarferli þótt fyrir því sé hvorki meirihluti á Alþingi né hjá þjóðinni.

Utanríkisráðherra er í lófa lagið að kanna hvaða undanþágur Ísland geti fengið frá regluverki ESB en það er aftur á móti mjög ótrúlegt sem fram kemur í greinargerð tillögunnar að Ísland þurfi að sækja um aðild að ESB og ljúka aðlögunarferli til að fá svar við því hvort og hvaða undanþágur séu mögulegar.

Utanríkismálanefnd gæti sent formlegt erindi til ESB til að kanna hvort það sé rétt að Ísland geti mögulega fengið varanlegar undanþágur frá regluverkinu og hvort það sé einnig rétt að eina leiðin til að fá svar við þeirri spurningu sé að hefja og ljúka aðildarferli að ESB.

6. Lítill stuðningur við aðildarumsókn

Það er augljóslega ekki meirihluti fyrir aðild að Evrópusambandinu á Alþingi. Við þær aðstæður er ekki ráðlegt að hefja aðildarviðræður eða bjóða kjósendum upp á slíkan valkost í þjóðaratkvæðagreiðslu. Jafnvel þótt niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar yrði að „halda áfram“ aðildarviðræðum, væri sú niðurstaða eingöngu ráðgefandi en ekki bindandi. Í 48. grein stjórnarskrár Íslands segir:

„Alþingismenn eru bundnir eingöngu við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.“.

Þingmenn hafa svarið eið að stjórnarskránni og munu því að fylgja sinni sannfæringu hver sem niðurstaða ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu er. Þingmenn sem eru andvígir aðild, og kjörnir sem slíkir, munu áfram færa fram röksemdir gegn aðild og leggjast gegn því að regluverk Íslands verði aðlagað að kröfum ESB.

Það er ber því vott um mikið óraunsæi að leggja út í aðildarviðræður við ESB þegar meiri- hluti þings er beinlínis mótfallinn aðild. Næsta víst er að slíkar aðildarviðræður muni daga uppi líkt og gerðist árið 2013.

Tækist þrátt fyrir allt að ljúka viðræðum með aðildarsamningi, væru samt miklar líkur á að honum yrði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kæmist málið lengra, yrði að gera breytingar á stjórnarskrá sem væri ólíklegt að gengi eftir, enda þyrftu tvö þing að samþykkja þær.

Innihéldi samningur veigamiklar og varanlegar undanþágur Íslands frá regluverki ESB, gæti samt farið svo að honum yrði hafnað af einhverju aðildarríkja ESB.

Þegar málið er skoðað virðist það geta skilað engu öðru en að kljúfa þjóðina, eyða dýrmætum tíma Alþingis og kjósenda, sólunda tíma stjórnkerfisins og fjármunum skattgreiðenda – á meðan líkur á aðild Íslands að ESB verða að teljast mjög hverfandi.

7. Fáir vilja ganga í ESB eins og það er

Það heyrir til undantekninga að íslenskir aðildarsinnar vilji ganga í ESB eins og það er. Þeir segjast vilja skýrar undanþágur frá grundvallarreglum sambandsins og líta á aðildarviðræður sem einu leiðina til að komast að því „hvað sé í boði“.

Embættismenn ESB hafa aldrei alið á slíkum væntingum. Þeir hafa ítrekað sagt að varanlegar undanþágur séu ekki í boði fyrir umsóknarríki. Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram haldbær gögn um að þeir séu að segja ósatt. Þess í stað vísar hún til sérlausna sem eru ekki varanlegar undanþágur frá regluverkinu og gætu fallið niður með meirihlutaákvörðun. Í greinargerð með tillögunni segir:

„Rétt er að láta á það reyna hvort ekki verði það sama upp á teningnum í tilviki aðildar- viðræðna Íslands þannig að aðildarríkin verði tilbúin að taka tillit til sértækra og mikils- verðra hagsmuna Íslands. Niðurstaða um þetta atriði mun þó aðeins fást með því að eiga eiginlegar aðildarviðræður við ESB.“

Þetta er ekki sannfærandi. Það ætti einmitt að vera hægt að fá niðurstöðu í þetta grundvallar- atriði án þess að fara í aðildarviðræður við ESB. Nefndin gæti sparað landsmönnum mikið umstang með því að senda erindi til Brussel og fá úr þessu skorið í eitt skipti fyrir öll.

Eins og fram kemur í gögnum ESB, er markmið aðildarviðræðna ekki að semja um hvernig ESB uppfylli kröfur umsóknarríkis, heldur að semja um hvenær umsóknarríkið uppfyllir allar kröfur og regluverk ESB. Engin gögn hafa komið fram um að Ísland geti samið um varan- legar undanþágur frá til dæmis fiskveiðistefnu ESB.

Komi ekki fram staðfestingar frá ESB um að varanlegar undanþágur séu í boði, sem væri þá ný stefna af hálfu ESB, verður að teljast villandi að ala á slíkum væntingum meðal kjósenda í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Utanríkismálanefnd verður að sjá til þess að kjósend- ur verði ekki blekktir að þessu leyti.

8. Hagsmunum Íslands er betur borgið utan ESB

Þótt við viljum eiga góð samskipti við Evrópusambandið er ekki þar með sagt að óhætt sé að fela þeim forræði í okkar málum. Hagsmunir Íslands fara ekki nógu vel saman við hagsmuni ESB til þess að við getum treyst því að ákvarðanir og löggjöf þaðan verði ávallt til góðs fyrir Ísland. Ákvarðanir ESB hljóta að taka mið af aðstæðum og hagsmunum þeirra 450 milljón manna sem þar búa, en ekki þeirra 400 þúsund sem búa á Íslandi.

Ísland er umlukið hafi, langt frá aðildarríkjum ESB sem flest eru landlukt. Við höfum aðgang að norðurslóðum, miðin eru auðug af fiski, landið af hreinni orku og víðernum en í ESB er mikill skortur á öllum þessum þáttum. Þjóðartekjur á mann eru mun hærri hér en í ESB og Ísland myndi því greiða mun meira til sambandsins en það fengi til baka.

Ísland er með fríverslunarsamninga við tugi ríkja og þar á meðal Kína, sem myndu falla niður við inngöngu í ESB. Við aðild færi Ísland inn fyrir tollmúra ESB sem eru hannaðir til að verja iðnaðinn í ESB og ýmsa hagsmuni þar og miðast ekki við okkar hagkerfi. Iðnaðarvörur og bílar myndu í mörgum tilfellum hækka í verði. Kolefnistollur ESB myndi leiða til þess að vörur sem krefjast mikillar orku í framleiðslu verða mun dýrari innan tollmúra ESB en utan.

Aðildarsinnar og sumir fræðimenn halda því fram að ESB sé samstarf fullvalda ríkja. Gjarnan er spurt hvort Finnland sé þá ekki fullvalda ríki. Það er alls ekki augljóst því Finnland getur ekki gengið úr ESB án gríðarlegs tilkostnaðar. BREXIT sýndi að jafnvel eitt af öflugustu ríkjum heims og með sjálfstæðan gjaldmiðil, átti í fullu fangi með að komast út úr ESB. Embættismenn ESB leyndu ekki þeirri skoðun að útgangan ætti að vera Bretum dýrkeypt og öðrum ríkjum víti til varnaðar.

Guy Verhofstadt, sem fór með Brexit-málefni fyrir Evrópuþingið, sagði í ræðu í Strassborg þann 5. apríl 2017 að það mætti aldrei gerast að ríki sem gengi út fengi betri kjör en ríki sem væri áfram í ESB. Hann taldi að það gæti þýtt endalok Evrópusambandsins og því yrði að gæta þess að Brexit yrði ekki eftirsóknarvert fordæmi fyrir aðra.

Michel Barnier, sem var aðalsamningamaður ESB gagnvart Bretlandi, lét svipuð orð falla á ráðstefnu í Brussel þann 31. ágúst 2017 þegar hann sagði að hann vildi kenna Bretum lexíu um hvað það þýddi að yfirgefa innri markaðinn. Þótt hann hafi síðar reynt að draga úr vigt þessara ummæla, virtust þau lýsa hugarfari sem ríkti hjá fleiri embættismönnum Evrópu- sambandsins.

Donald Tusk, þáverandi forseti leiðtogaráðs ESB, stýrði fundum leiðtoganna þar sem stefnan í Brexit-viðræðunum var mörkuð. Á blaðamannafundi í febrúar 2019 sagðist hann hafa velt því fyrir sér hvernig sá „sérstaki staður í helvíti“ liti út, sem biði þeirra sem börðust fyrir Brexit án þess að hafa áætlun um hvernig ætti að framkvæma útgönguna á öruggan hátt.

Þarna var Tusk að hengja bakara fyrir smið, því það var auðvitað Evrópusambandið sem hefði átt að setja reglur um hvernig ætti að framkvæma útgöngu á öruggan hátt.

Auk þessa atriðis með útgönguna hafa málsmetandi hagfræðingar bent á að útganga úr mynt- bandalaginu sé ekki raunhæfur valkostur. Engin ákvæði eru í sáttmálum eða reglum ESB um hvernig aðildarríki myntbandalagsins geti gengið úr því og tekið upp sjálfstæðan gjaldmiðil á ný á öruggan hátt.

Það er því ljóst að fyrst kostnaður við útgöngu úr ESB er gríðarlegur, þá verða aðildarríkin að sætta sig við þær ákvarðanir sem teknar eru í Brussel. Neitunarvald einstakra ríkja, sem áður var algengara og mikilvægasta tæki fámennra ríkja til að gæta hagsmuna sinna í samstarfinu, hefur með uppfærslum á sáttmálum ESB verið fellt niður á sífellt fleiri málefnasviðum.

Með inngöngu myndi Ísland því halda fullveldi sínu aðeins að nafninu til en ekki í raun og veru. Ísland yrði auk þess eitt af fámennustu ríkjum ESB og hefði því nær engin áhrif á ákvarðanir ESB. Fyrir Ísland væri útganga enn erfiðari en hún reyndist Bretlandi og sennilega óframkvæmanleg eftir að evra væri tekin upp.

9. Niðurstöður

Tímasetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar gengur ekki upp. Þinginu og þjóðinni er skammtaður eins naumur tími og lög leyfa til að fjalla um málið. Engar skýringar hafa komið fram á þeim flýti en hann skerðir mjög möguleika þingsins og kjósenda til að kynna sér málið og taka upplýsta afstöðu.

Orðalag spurningarinnar er villandi. Það gefur kjósendum væntingar um að Ísland sé enn með stöðu umsóknarríkis og því sé hægt að „halda áfram viðræðum“ eins og ekkert hafi í skorist. Einnig gefur það í skyn að sú vinna sem unnin var á árunum 2009-2013 sé enn í fullu gildi.

Sú ríkisstjórn sem sótti um aðild að ESB árið 2009, var bundin af skilyrðum Alþingis, sem gerðu ítarlegar kröfur um samráð á öllum stigum ferlisins og að ríkisstjórnin mátti ekki víkja frá þeim hagsmunum sem raktir voru í nefndaráliti meirihluta utanríkisnefndar um umsóknina. Núverandi ríkisstjórn er ekki bundin á sama hátt, nema það Alþingi sem nú situr setji henni sambærilega fyrirvara og ramma áður en framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar er samþykkt.

Ríkisstjórnin hefur ekki nægt umboð frá kjósendum til að setja aðild að ESB á dagskrá. Fyrir kosningar voru aðildarviðræður að ESB ekki á dagskrá þeirra flokka sem nú mynda ríkis- stjórn. Flokkur fólksins er andvígur aðild, Samfylkingin ítrekaði að aðild yrði ekki á dagskrá og Viðreisn hafði önnur mál í forgrunni.

Það er ekki meirihluti fyrir aðild á þinginu. Við þessar aðstæður verður að telja óraunhæft að setja málið á dagskrá.

Talsmenn ESB hafa ítrekað sagt að það sé ekki hægt að fá varanlegar undanþágur frá regluverkinu. Varanlegar undanþágur ganga gegn stefnu ESB og auk þess verður að telja mjög ólíklegt að 27 aðildarríki myndu samþykkja slíkar undanþágur eins og staðan er nú. Þau standa mörg í stappi við framkvæmdastjórn ESB vegna ákvarðana hennar, sem þau telja sum ganga gegn sínum hagsmunum.

Undirritaður telur farsælast að Ísland hafi fullt forræði í eigin málum. Í krafti fullveldisins, auðlindanna og fólksins í landinu hefur tekist að gera lífskjör hér betri en í nær öllum löndum heims. Aðild að Evrópusambandinu felur í sér framsal á löggjafarvaldi, framkvæmdavaldi og dómsvaldi úr landi og til stofnana sem þurfa að taka mið af hagsmunum heildarinnar en ekki þeirra sem hér búa. Sambandið glímir við stór vandamál um þessar mundir og horfur þar eru ekki bjartar. Auk þess er ólíklegt að Ísland gæti gengið aftur úr ESB til að endurheimta fullveldið og engar reglur eru um útgöngu úr myntbandalaginu.

Að lokum vill ég þakka nefndinni fyrir að kalla eftir umsögn minni í þessu máli og er að sjálfsögðu fús til að mæta fyrir nefndina til að svara spurningum.

Virðingarfyllst,

Frosti Sigurjónsson

Bókin um ESB – hvað er í pakkanum?
Bókin um ESB er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka af­stöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg.

Þetta er ekki bók um kosti og galla aðildar Íslands að ESB, heldur gefur hún greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórn­kerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega er fjallað um eigin­leika tolla­banda­lags ESB, stefnu þess í landbúnaðar- ogsjávarútvegsmálum og einnig um utanríkismál ESB og myntbanda­lag evrunnar.

Áföll eins og fjármálahrun, Brexit, flóttamannavandi og heims­faraldur, sýna styrkleika og veikleika sambandsins og bókin rekur hvernig ESB gekk að vinna úr þeim.

Í byrjun árs 2026 glímdi Evrópusambandið við stór vandamál sem tekin eru til skoðunar í bókinni, svo sem vaxandi lýðræðishalla, öldrun, versn­andi skulda­stöðu, ófjármagnaða lífeyrissjóði, stríð í Úkraínu, hátt orku­verð og ef­na­hags­samdrátt. Á sama tíma hefur fylgispekt aðildar­ríkjanna við stefnu og ýmsar ákvarðanir ESB minnkað.

Evrópusambandið er nú á krossgötum. Leiðtogar sumra aðildarríkja og æðstu embættismenn ESB segja nauð­syn­legt að ESB verði að sam­bands­ríki og herveldi til að ráða við aðsteðjandi vandamál og treysta stöðuna í sam­keppni stór­velda í framtíðinni.

Þessi bók er skrifuð fyrir þá sem vilja skilja betur hvernig ESB starfar og hverjar áskoranir þess eru í dag, einskonar rýniskýrsla og skyldu­lesning fyrir þá sem vilja vita „hvað er í pakkanum“.

Hér er hægt að kaupa Bókina um ESB.

ESB semur við Noreg um ofveiði á makríl
Í gærkvöldi bárust þær upplýsingar að ESB, Noregur og Færeyjar hafi gert samkomulag um magn og skiptingu makrílafla án þáttöku Íslands. Umsamið aflamagn er langt umfram veiðiráðgjöf. Íslendingar vildu ekki taka þátt í samkomulagi sem byggði á veiði langt umfram ráðgjöf vísindamanna og það er gott.

Hingað til hefur makríll ekki verið á lista yfir fiskistofna sem eru ofveiddir. Neytendur verða sífellt meðvitaðri um umhverfismál og hvaða áhrif innkaup þeirra geta haft á fiskistofna. Þessi samningur um ofveiði gæti því dregið úr eftirspurn eftir makríl um leið og hann stóreykur framboðið. Afleiðingin gæti orðið verðhrun á makríl.

Ísland stundar ekki ofveiði en ESB ofveiðir 80% af sínum fiskistofnum og 30% fiskistofna ESB eru að hruni komnir. Þá staðreynd þarf að kynna á okkar helstu mörkuðum svo þeir neytendur sem kjósa sjálfbærar vörur geti tekið upplýstar ákvarðanir.

Raunvextir íbúðalána í Kýpur mun hærri en hér
Evruríkið Kýpur lenti í efnahagslegu áfalli og glímir nú við afleiðingar þess. Aðild að myntbandalagi reyndist því ekki sú trygging gegn efnahagshruni sem margir hafa haldið.

Aðild að myntbandalaginu reynist ekki heldur vera sú vörn gegn háum vöxtum íbúðalána sem margir hafa talið.

Samkvæmt Bank of Cyprus eru nú vextir lána til kaupa á íbúð til eigin nota hærri en 5% og hærri en 7% ef um fjárfestingu í húsnæði er að ræða. Verðbólga á Kýpur í janúar mældist neikvæð um 2.8%. Þar sem þessi íbúðalán í evrum eru óverðtryggð og verðhjöðnun er 2.8% má segja að raunvextir þeirra séu frá 7,8% – 9.8% eins og staða mála er nú.

Hér í krónulandi hrunsins eru raunvextir íbúðalána mun lægri. Landsbankinn býður núna 3,8% verðtryggða vexti á íbúðalán. Óverðrtryggð lán bera 7,3% nafnvexti en verðbólga mælist nú 2%. Raunvextir óverðtryggðra íbúðalána á Íslandi eru frá 5,3% sem er töluvert lægra en 7,8%.

Þetta dæmi sýnir að evran er ekki það örugga skjól sem talið var. Evran getur ekki tryggt aðildarríki gegn kreppum og ekki heldur tryggt þeim lægri vexti. Þar mun hverju ríki reynast best að stjórnvöld á hverjum tíma, fyrirtækin og landsmenn sýni ráðdeild og yfirvegun í sínum efnahags- og peningamálum.

Hefði ekki verið betra að spyrja leyfis?
Hér er andsvar mitt við ræðu Valgerðar Bjarnadóttur í umræðum um skýrslu utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Virðulegur forseti,

Við ræðum hér skýrslu utanríkisráðherra um aðildarviðræður við ESB.

Ég vil spyrja háttvirtan þingmann Valgerði Bjarnadóttur hvað henni finnist um þær upplýsingar sem fram koma í skýrslunni um umsóknarferlið og aðferðafræði þess.

Á bls 25 í Viðauka I – umsókn Íslands og stækkunarstefna ESB stendur:

„Þær breytingar á aðildarferlinu sem urðu með umsókn Mið- og Austur-Evrópuríkjanna hafa sætt gagnrýni. Með þeim hafi Evrópusambandið fengið yfirhöndina í aðildarviðræðum sem sé þróun sem hófst með fyrstu stækkuninni. Ríkjunum sé ekki eingöngu gert að samþykkja löggjöf sambandsins á fyrstu stigum heldur einnig að laga sig að stefnu sambandsins og hrinda löggjöf þess í framkvæmd fyrir gerð aðildarsamnings og gildistöku hans.“

Er háttvirtur þingmaður sammála þessari gagnrýni á stækkunarferlið sem fram kemur í skýrslunni? Var henni kunnugt um þessa veiku stöðu umsóknarríkisins þegar hún greiddi atkvæði með umsókninni og þá kröfu Evrópusambandsins að umsóknarríkið hrindi í framkvæmd löggjöf sambandsins áður, já áður en þjóðin fær að taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Hefði ekki verið betra að spyrja þjóðina álits áður en hafist var handa við að aðlaga Ísland að Evrópusambandinu?

Þingræða um ESB skýrslu Hagfræðistofnunar
Ræða sem ég flutti í Alþingi 20. febrúar um ESB skýrslu Hagfræðistofnunar.

Virðulegi Forseti,

Við ræðum skýrslu utanríkisráðherra um stöðu aðildarferlisins og horfur í Evrópusambandinu.

Þær upplýsingar sem fram koma í skýrslunni styðja þá skoðun mína að forsendur aðildarumsóknarinnar séu brostnar og Evrópusambandið sé alls ekki sú lausn á vandamálum Íslands sem haldið var fram.

Hvað varð um hraðferðina inn í ESB? Því var haldið fram að hægt væri að hægt væri að ljúka samningi á 9 til 18 mánuðum og vitnað í sjálfan stækkunarstjóran Olli Rehn í því efni. Ekki hefur sú forsenda staðist. Það er ekki einu sinni búið að opna erfiðu kaflana um sjávarútveg og landbúnað. Það er ekki búið að ljúka nema 11 köflum af 33 á fjórum árum.

Því var líka haldið fram að varanlegar undanþágur væru í boði. Skýrsla Hagfræðistofnunar sýnir hinsvegar fram á að það eru engar varanlegar undanþágur, aðeins tímabundnar sérlausnir. Samningar snúast því aðeins um hvernig og hversu hratt umsóknarríkið uppfyllir skilyrði og regluverk Evrópusambandsins.

Árið 2009 var íslenska þjóðin í áfalli vegna efnahagshruns. Sjálfstraust þjóðarinnar og trú hennar á framtíðinni var í sögulegu lágmarki. Við þær kringumstæður var aðild að Evrópusambandinu kynnt sem lausn á vandanum. Aðild myndi útiloka frekari kollsteypur í framtíðinni og öll áföll yrðu bærilegri í mjúkum faðmi Evrópusambandsins. Annað kom á daginn. Kreppan beit líka á aðildarríki Evrópusambandsins. Sum þeirra þurftu jafnvel að leita á náðir hins harðskeytta þríeykis sem samanstendur af Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, Seðlabanka Evrópu og Framkvæmdastjórn ESB. Björgunaraðgerðunum þríeykisins fylgjdu afar harðar skilmálar, miklu harðari en Ísland mátti þola. Í Grikklandi var skorið inn að beini í ríkisrekstri. Skortur varð á lyfjum í landinu. Hjartaáföllum hefur fjölgað um 50% hjá grískum konum frá hruni og 65% ungra kvenna er án atvinnu.  Á Írlandi var skattgreiðendum gert að axla skuldir fallina fjármálafyrirtækja. Þeir fengu ekkert val um það. Á Kýpur krafðist þríeykið veða í lífeyrissjóðum landsmanna og í gaslindum landsins. Þannig mætti lengi telja. Það er allavega ljóst núna að þegar á móti blæs, þá er Evrópusambandið ekki það skjól sem menn gerðu sér vonir um.

Því var haldið á lofti að gjaldmiðill Íslands væri ónýtur og myntbandalag Evrunnar lausnin. En hið gagnstæða hefur komið í ljós. Efnahagskreppan afhjúpaði djúpstæð vandamál í myntbandalaginu, vandamál sem ekki hafa verið leyst. Aðildarríki evrunnar eru með ólíkan efnahag, ósveigjanlegan vinnumarkað, hreyfanleiki vinnuafls er miklu minni en t.d. í Bandaríkjunum og það er ekki eining um að flytja fjármagn frá betur stöddum svæðum til bágstaddra svæða. Evran veldur aðildarríkjum myntbandalagsins því skaða, hún eykur atvinnuleysi og kyndir undir pólitískri spennu. Sumir telja að eina lausnin sé að breyta evrusvæðinu í eitt ríki. Pólverjar, Svíar, Bretar og Danir halda dauðahaldi í sína gjaldmiðla og sýna ekki áhuga á að ganga í myntbandalagið.

Í stöðuskýrslu um Ísland sem unnin var fyrir Evrópuþingið í nóvember sl. er skjótur efnahagsbati Íslands þakkaður því að gengi krónunnar gat lækkað, miklum viðskiptaafgangi og fjarlægð Íslands frá evrusvæðinu. Sú forsenda aðildarumsóknarinnar að evran sé lausnin og krónan vandamálið stenst því ekki skoðun.

En hvað með lægri vexti? Skýrsla Hagfræðistofnunar sýnir að vaxtastig er mjög mismunandi í löndum myntbandalagsins og hleypur munurinn á mörgum prósentustigum. Á Kýpur þar sem vextir eru einna hæstir, er árleg hlutfallstala kostnaðar nú rúmlega 7% á 15 ára íbúðaláni, samkvæmt Bank of Cyprus – Verðbólga á Kýpur í janúar var neikvæð um 2,8% Það þýðir að raunvextir íbúðalána í janúar voru 10%. Það eru verulega hærri vextir en hér á landi. Þótt Kýpur sé aðili að myntbandalagi Evrunnar tekur vaxtastigið mið af efnahag landsins. Aðild að myntbandalaginu er því ekki  trygging fyrir lægri vöxtum.

Þegar umsóknin var lögð fram var rætt um hve áhrif smáríkja væru mikil í Evrópusambandinu – gott ef fullveldið átti ekki að styrkjast við aðild. Ísland þyrfti allavega ekki að óttast áhrifaleysi vegna smæðar sinnar. Við myndum fá sæti við borðið og á okkur yrði hlustað. Gildistaka Lissabon sáttmálans hefur hins vegar dregið mjög úr áhrifum smáríkja. Þannig missti Malta 90% af atkvæðamagni sínu í ráðherraráðinu á sama tíma og áhrif Þýskalands tvöfölduðust. Neitunarvald var afnumið á 68 sviðum sem dregur mjög úr möguleikum smáríkja til að beita sér. Þrátt fyrir þessa miklu áhrifaskerðingu var Lissabon sáttmálinn aldrei borinn undir þjóðaratkvæði á Möltu. Aðeins Írar fengu að kjósa um Lissabon sáttmálann en þeir kusu rangt og voru þá látnir kjósa aftur.

Efnahagskreppan í Evrópusambandinu hefur kostað ófáa neyðarfundi. Þá voru það leiðtogar stóru ríkjana, einkum Þýskalands, sem tóku ákvarðanirnar en smáríkin fengu að samþykkja ráðahaginn eftirá.

Ísland yrði lang-áhrifaminnsta aðildarríkið í Evrópusambandinu með 0.06% atkvæðamagns. Meðal aðildarríkið er 60 sinnum fjölmennara en Ísland. Erfitt að sjá fyrir sér að afstaða Íslands myndi skipta úrslitum í nokkru máli.

Og hvert stefnir Evrópusambandið? Um það er erfitt að spá. Ýmsir leiðtogar sambandsins, þar á meðal Jose Manuel Barroso, Vivian Reading og jafnvel Angela Merkel, hafa þó lýst þeirri skoðun að Evrópusambandið eigi að þróast í Bandaríki Evrópu. Viðhorfskannanir benda til þess að almenningur í ýmsum aðildarríkjum sé á sama máli.

Almenningur í Bretlandi er hins vegar á því að Bretland eigi að segja sig úr Evrópusambandinu og hefur verið þeirrar skoðunar í nokkur ár.

Hér á landi skortir einmitt vilja til aðildar. Vilji til aðildar hlýtur að vera mikilvægasta forsenda aðildarferlisins. En aðildarvilji er hvorki fyrir hendi á þingi, hjá ríkisstjórn né þjóðinni. Undanfarin fjögur ár hafa allar viðhorfskannannir sýnt afgerandi andstöðu við aðild. Flokkar sem höfðu lýst andstöðu við aðild unnu stórsigur í síðustu alþingiskosningum.

Í Noregi hafa stjórnvöld tvívegis brennt sig á því að hefja aðildarviðræður án þess að nægur vilji sé til aðildar. Þótt stjórnarflokkar í Noregi séu hallir undir aðild að Evrópusambandinu þá hefja þeir ekki aðildarferli á meðan þjóðin er andvíg aðild. Það er skynsamleg afstaða sem við gætum lært af.

Virðulegi forseti,

Eins og ég hef nú rakið, þá eru meginforsendur umsóknar Íslands að Evrópusambandinu brostnar, auk þess sem framtíðarþróun Evrópusambandsins er óviss.

Eins og málin standa, teldi ég afar óskynsamlegt að halda aðildarferlinu áfram.

Þess í stað ættu stjórnvöld að beina kröftum sínum óskiptum að því að efla hagsæld og velferð fólksins í landinu. Tækifærin til þess eru nánast óþrjótandi. Það felast líka tækifæri í því að efla samstarf og viðskipti Íslands við aðrar þjóðir, þar með taldar þjóðir Evrópusambandsins.

Íbúar ESB fá kraftminni ryksugur
ESB ætlar að banna sölu á kraftmiklum ryksugum. Frá og með september 2014 verður bannað að selja heimilisryksugur aflmeiri en 1600 W. Frá 2017 má aflið ekki vera meira en 900 W.

Nýjar ryksugur eru margar ríflega 2000 W í afli. Krafa ESB er því að helminga aflið árið 2017. Annað hvort þurfa ryksugur framtíðarinnar þá að nýta orkuna tvöfalt betur, eða íbúar ESB munu þurfa að ætla sér töluvert lengri tíma í að ryksuga en nú tíðkast.

Það er ekki að ástæðulausu sem ESB grípur til þess að takmarka orkunotkun heimilistækja. Stór hluti af rafmagni ESB byggir á eldnsneyti af einhverju tagi. Í ESB er rafmagn bæði dýrt og af skornum skammti.

Íslendingar eru í allt annari aðstöðu. Hér er nóg af ódýru, grænu rafmagni sem er framleitt að mestu með vatnsafli. Íslenskir neytendur ættu því að njóta frelsis til að ákveða sjálfir hvort þeir kaupa sér kraftmiklar ryksugur eða ekki.

En verði ekkert að gert, þá mun ryksugutilskipun ESB rata nánast sjálfkrafa inn í EES samninginn og þá mun hún hafa áhrif á neytendur hér á landi.

Að innleiða bann við glóperum og kröftugum ryksugum á Íslandi felur í sér algerlega óþarfa takmörkun á valfrelsi og lífsgæðum landsmanna. Sparperur eru margfalt dýrari en glóperur, sparperur gefa frá sér verri birtu og innihalda eitraðar kvikasilfursgufur. Sparryksugur munu vafalítið kosta meira en venjulegar ryksugur og ólíklegt að þær skili sömu afköstum og tvöfalt kraftmeiri ryksugur.

Hér má finna nánari upplýsingar um EcoDesign löggjöf ESB hún nær til mun fleiri heimilistækja en ryksugna.